Fréttir
286 287 288 289 290 291 292 293 294 … 334 ›
Hlakkar í Rússum vegna heimsóknar Carlson Tucker Carlson, fyrrverandi sjónvarpsmaður Fox News, hefur tekið viðtal við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þetta er fyrsta viðtal forsetans af þessu tagi frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu í febrúar 2022. Erlent 7.2.2024 16:28
Hlemmur gjörbreytist í sumar Bílaniður víkur fyrir taktföstum skrefum og mannlífsins hljómi - ómi hjarta Hlemmtorgsins sem fær loksins að slá. Þannig kemst borgarfulltrúi Pírata að orði um breytingar á Hlemmi sem verða að veruleika í sumar. Strætó kveður Hlemm með breytingunum og ekki verða almenningssamgöngur þar fyrr en Borgarlínan leggur í hann. Innlent 7.2.2024 16:26
Dr. Bjarki Þór ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga Dr. Bjarki Þór Grönfeldt hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Innlent 7.2.2024 16:00
Vill axla ábyrgð eftir misheppnað rán á Pizzunni 23 ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rán á veitingastaðnum Pizzunni fyrir rúmum tveimur árum. Hann hafði lítið upp úr krafsinu og missti bæði síma sinn og lykla á vettvangi glæpsins. Hann sagðist fyrir dómi vilja axla ábyrgð á brotum sínum en hann hefur farið í meðferð vegna fíknivanda. Innlent 7.2.2024 15:56
Ítalskur karlmaður handtekinn á Íslandi grunaður um barnaníð Tæplega fimmtugur ítalskur karlmaður búsettur á Íslandi hefur verið handtekinn grunaður um að hafa brotið á að minnsta kosti fimmtíu ungum stúlkum. Innlent 7.2.2024 15:13
Gæsluvarðhald yfir móðurinni framlengt um fjórar vikur Héraðsdómur Reykjaness hefur framlengt gæsluvarðhald yfir konu um fimmtugt, sem grunuð er um að hafa banað sex ára syni sínum, um fjórar vikur. Lögregla telur sig hafa nokkuð skýra mynd af atburðarrásinni. Innlent 7.2.2024 14:35
Höfðar mál gegn Disney og Lucasfilm með stuðningi Musks Leikkonan Gina Carano hefur höfðað mál gegn Walt Disney og Lucasfilm, með stuðningi auðjöfursins Elons Musk. Carano heldur því fram að hún hafi ranglega verið rekin frá þáttunum Mandalorian árið 2021 vegna þess að hún hafi dreift íhaldssömum stjórnmálaskoðunum sínum á samfélagsmiðlum. Erlent 7.2.2024 14:24
Leita barna sem köstuðu klaka af brú á Miklubraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar þriggja stráka á barnsaldri, mögulega á aldrinum níu til ellefu ára, sem grunaðir eru um að hafa kastað stórum klaka af göngubrú yfir Miklubraut í Reykjavík á sunnudag. Klakinn hafnaði á framrúðu bíls. Innlent 7.2.2024 13:54
Ætla að sækja fleiri fjölskyldur frá Gasa Þrjár íslenskar konur sem sóttu í gær fjölskyldu, með dvalarleyfi á Íslandi, og fluttu frá Gasasvæðinu og yfir til Egyptalands ætla að halda áfram að bjarga börnum af svæðinu á meðan íslensk stjórnvöld funda um ástandið. Solaris samtökin hafa efnt til söfnunar til að koma fólki frá svæðinu. Innlent 7.2.2024 13:42
Seðlabankastjóri segir allt á réttri leið Verulega hefur dregið úr einkaneyslu og hagvöxtur fer hratt minnkandi enda hafa raunvextir hækkað töluvert frá því í júní í fyrra. Seðlabankinn fylgist grannt með framgangi kjaraviðræðna og ákvað í morgun að halda meginvöxtum sínum óbreyttum. Innlent 7.2.2024 11:52
Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni. Erlent 7.2.2024 11:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við seðlabankastjóra um þá ákvörðun peningastefnunefndar að halda stýrivöxtum óbreyttum að þessu sinni. Innlent 7.2.2024 11:35
Bein útsending: Áhersla á hreyfingu fatlaðra og Lífshlaupið opnað Endurskoðuð útgáfa opinberra ráðlegginga um hreyfingu og takmörkun kyrrsetu fyrir Ísland verður kynnt klukkan 12 hjá embætti landlæknis. Samhliða verður Lífshlaupið 2024 opnað. Innlent 7.2.2024 11:35
Kallað út vegna vatnsleka í Hamraborg Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna vatnsleka í húsi sem stendur við Hamraborg í Kópavogi. Innlent 7.2.2024 11:29
Leit haldið áfram við Færeyjar í dag Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Suðurey í Færeyjum í gær verður haldið áfram í dag. Sextán manns voru um borð í skipinu þegar það fékk á sig brotsjó í gærmorgun og mikil slagsíða kom á það. Erlent 7.2.2024 10:22
Ætla að safna fimmtíu milljónum til að koma fólkinu sjálf frá Gasa Efnt hefur verið til söfnunar til að standa að kostnaði við að flytja 128 Palestínumönnum frá Gasa. Þrjár íslenskar konur sem blöskraði aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar hafa sótt konu og þrjú börn til Gasa og komið til Egyptalands í öruggt skjól. Innlent 7.2.2024 09:50
Tucker Carlson í Moskvu til að taka viðtal við Vladimir Pútín Hinn umdeildi sjónvarpsmaður Tucker Carlson er staddur í Moskvu, að eigin sögn til að taka viðtal við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nauðsynlegt að upplýsa Bandaríkjamenn um stríð sem þeir eru að fjármagna en vita fátt eitt um. Erlent 7.2.2024 08:06
Móðir dæmd samsek fyrir skotárás sem sonurinn framdi í skóla Kviðdómur í Michigan í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona á fimmtugsaldri væri sek um manndráp af gáleysi, fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir það þegar sonur hennar skaut fjóra samnemendur sína til bana í gagnfræðaskóla í bæ þeirra. Erlent 7.2.2024 07:53
Laut í lægra haldi fyrir valkostinum „Enginn af þessum frambjóðendum“ Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, mátti þola mikla niðurlægingu í gær þegar forval fyrir forsetakosningarnar fór fram í Nevada í gær. Erlent 7.2.2024 07:23
Norðlæg átt og él norðantil Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, þar sem él verða á norðanverðu landinu en léttir til norðvestantil. Léttskýjað verður sunnan heiða. Veður 7.2.2024 07:19
Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. Erlent 7.2.2024 06:52
Endurtaka þarf tilnefningar til biskupskjörs vegna tæknilegra vandamála Ákveðið hefur verið að endurtaka tilnefningar til biskupskjörs vegna tæknilegra mistaka sem áttu sér stað hjá Advania, sem var þjónustuaðili vegna kosninganna. Innlent 7.2.2024 06:35
Fyrrverandi forseti Síle lést í þyrluslysi Sebastian Pinera, fyrrverandi forseti Síle, lést í dag þegar þyrla sem hann ferðaðist með féll ofan í stöðuvatn í suðurhluta Síle. Pinera var 74 ára gamall. Erlent 6.2.2024 23:55
Landhelgisgæslan greiddi Sportbátum tæpar þrjár milljónir Landhelgisgæslan greiddi fyrirtækinu Sportbátum tæpar þrjár milljónir inn á Zodiak-bát fyrir sjómælingaskipið Baldur í nóvember í fyrra. Fyrirtækið er sagt hafa snuðað björgunarsveitina Skagfirðingasveit um níu milljónir. Innlent 6.2.2024 22:48
Íslenskar konur sóttu fjölskyldu frá Gasa: „Drengirnir voru þreyttir og sögðu lítið“ „Þetta er ekki svona flókið, og ef þetta er svona flókið, hvernig fórum við þá að þessu? Þetta er enginn ómöguleiki,“ segir rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir, sem er nú stödd í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þar sem hún tók á móti fjögurra manna fjölskyldu frá Gasa í dag. Innlent 6.2.2024 22:23
Eggjum grýtt og unglingar handteknir á Austurvelli Tveir voru handteknir á fjölmennum mótmælum skólabarna á Austurvelli í dag. Krakkarnir kröfðust vopnahlés á Gasa og að íslensk stjórnvöld kæmu fjölskyldusameiningum til framkvæmda. Forsætisráðherra viðurkennir að málið þyrfti skjóta afgreiðslu en flókin framkvæmd tefji fyrir. Innlent 6.2.2024 20:09
Kvosin í miðbænum verður göngusvæði og bílastæðin fara Kvosin í Reykjavík verður að heildstæðu göngusvæði og verða bílastæði sem nú eru á svæðinu því tekin. Borgarfulltrúi segir breytinguna verða mikla lyftistöng fyrir staðinn þar sem áhersla verður lögð á gróður, lýsingu og fjölskylduvænt rými. Innlent 6.2.2024 19:32
„Getum einfaldlega ekki haldið áfram í einhverri blindni“ Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir dagaspursmál um að ráðherranefndin og ríkisstjórnin komist til botns í umræðu sinni um málefni hælisleitenda og geti því myndað sér nýja stefnu í málaflokknum. Hann segir að það gæti gerst innan skamms að Ísland fari að bjarga fólki, en segist óttast að innviðir landsins springi. Innlent 6.2.2024 19:12
Frumvarp vegna húsnæðis í Grindavík væntanlegt síðar í vikunni Forsætisráðherra væntir þess að frumvarp um uppgjör á íbúðarhúsnæði í Grindavík verði kynnt síðar í vikunni. Hún segir frumvarpið lúta að því að fólki verði gert kleift að koma sér fyrir á nýjum stað, óháð því hvort hús þeirra hafi verið metin sem tjónuð af Náttúruhamfaratryggingu eða ekki. Innlent 6.2.2024 19:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tveir voru handteknir á fjölmennum mótmælum skólabarna á Austurvelli í dag. Krakkarnir kröfðust vopnahlés á Gasa og að íslensk stjórnvöld kæmu fjölskyldusameiningum til framkvæmda. Forsætisráðherra viðurkennir að málið þyrfti skjóta afgreiðslu en flókin framkvæmd tefji fyrir. Innlent 6.2.2024 18:01