Aftur var það VAR sem bjargaði Tottenham gegn Man. City Anton Ingi Leifsson skrifar 17. ágúst 2019 18:30 Úr leiknum í dag. vísir/getty Manchester City og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en eftir mikla dramatík var mark Gabriel Jesus í uppbótartíma dæmt af. Leikurinn var bráðskemmtilegur en bæði lið eru því með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Það var mikill kraftur í báðum liðum til að byrja með en City komst yfir með marki frá Raheem Sterling. Markið skoraði hann með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Kevin de Bruyne. Þremur mínútum síðar var staðan hins vegar orðin jöfn. Erik Lamela fékk boltann rétt fyrir utan vítateig City og lét ekki bjóða sér það tvisvar. Hann skrúfaði boltanum innan fótar, skemmtilega, í fjærhornið og Ederson var varnarlaus í markinu. Ekki fast en hnitmiðað. Allt jafnt. Fjörinu í fyrri hálfleik var ekki lokið því á 35. mínútu skoraði Sergio Aguero annað mark City. Aftur var það Belginn, De Bruyne, sem var arkitektinn.Kevin De Bruyne has provided more assists since the start of the 2016-17 Premier League season than any other player in the division (38). World-class creating once again. pic.twitter.com/M1uZBKDDyX — Squawka Football (@Squawka) August 17, 2019 Lucas Moura var búinn að vera inn á í fimmtán sekúndur er hann jafnaði metin fyrir Tottenham á 56. mínútu. Þessi litli en flinki leikmaður jafnaði með skalla eftir hornspyrnu. Flestir héldu að City væri að tryggja sér sigurinn í uppbótartíma er Gabriel Jesus skoraði á 91. mínútu en eftir tveggja mínútna VARsjá var markið dæmt af. Boltinn fór nefnilega af hendi Aymeric Laporte og til Jesus sem skoraði. Michael Oliver, dómari leiksins, fékk meldingu í eyrað og dæmdi markið af.17th April: Raheem Sterling's goal is disallowed against Tottenham because of VAR. 17th August: Gabriel Jesus' goal is disallowed against Tottenham because of VAR. It's happened again. pic.twitter.com/RNmicVGkJQ — Squawka News (@SquawkaNews) August 17, 2019 Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist hjá þessum sömu liðum en í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar virtist City vera skjóta sér áfram í uppbótartíma. Þá, eins og nú, var markið einnig dæmt af eftir VARsjá. Þessum frábæra leik lauk því með 2-2 jafntefli og Pep Guardiola, stjóri Man. City, brosti kaldhæðnislegu brosi í leikslok. Enski boltinn