Stj.mál
76 77 78 79 80 81 82 83 84 … 187 ›
Íslenskukennsla flyst til Mímis Námsflokkar Reykjavíkur, sem heyra undir menntasvið Reykjavíkurborgar, munu skrifa undir þriggja ára þjónustusamning um íslenskukennslu fyrir útlendinga sem búsettir eru í Reykjavík, við Mími-símenntun í dag. Þá tekur samningurinn einnig til þróunar kennsluhátta í íslensku fyrir útlendinga. Innlent 14.10.2005 06:40
Þorbjörg sækist eftir 4. sæti Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 4. sæti á lista sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Þorbjörg er menntuð á sviði uppeldis- og menntunarfræða og lauk MA-prófi í námssálfræði frá háskólanum í Washington en hún starfar nú sem ráðgjafi menntamálaráðherra. Innlent 14.10.2005 06:40
Hugmyndir móðgun við Álftnesinga Guðmundur A. Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, segir að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra eigi að segja af sér, fyrir að móðga bæjarbúa með óskynsamlegu tali um að honum lítist betur á að flytja innanlandsflugið til Álftaness en á Löngusker. Innlent 14.10.2005 06:40
Ráðherra segi af sér vegna ummæla Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Álftaness, sagði í viðtali í Íslandi í bítið fyrr í morgun að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ætti að segja af sér eftir ummæli sín í fréttum í gær. Þá sagði Sturla að sér litist betur á að hafa flugvöll á Álftanesi en á Lönguskerjum. Innlent 14.10.2005 06:40
Vill fé til að mæta umönnunarvanda Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að leggja fyrir borgarráð tillögur um sérstaka fjárheimild til að veita stjórnendum leikskóla og frístundaheimila olnbogarými til að greiða fyrir yfirvinnu og álag vegna undirmönnunar sem nú háir leikskólastarfi í borginni. Innlent 14.10.2005 06:40
Tekið harðar á heimilisofbeldi Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur ákveðið að fylgja fram tillögum refsiréttarnefndar um að breyta hegningarlögum, til að unnt verið að bregðast harðar við heimilisofbeldi. Kom þetta fram í ræðu ráðherrans í dag á norrænni ráðstefnu um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi, sem haldin er hér á landi að frumkvæði Stígamóta. Innlent 14.10.2005 06:40
43 prósent hlynnt aðild að ESB Litlar breytingar virðast hafa orðið á afstöðu Íslendinga til aðildar að Evrópusambandinu eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandsins. Þetta leiðir ný könnun sem IMG Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í ljós. 43 prósent svarenda í könnuninni reyndust hlynnt Evrópusambandsaðild en 37 prósent andvíg henni. Innlent 14.10.2005 06:40
Ný stefna í flugvallarmáli Ekki er nema hálft ár frá því að Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri boðaði að Reykjavíkurflugvöllur yrði áfram í Vatnsmýri en í smækkaðri mynd. Nú hefur flugvallarmálið tekið algerlega nýja stefnu. Innlent 14.10.2005 06:40
Úthluta hvatapeningum í Garðabæ Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að hvert barn á aldrinum 6-16 ára fái árlega úthlutað tiltekinni upphæð, svokölluðum hvatapeningum, sem barnið og/eða foreldrar þess geta varið til að greiða niður félagsgjöld í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Upphæðin verður 10 þúsund krónur á barn á árinu 2005 og 20 þúsund krónur á ársgrundvelli frá og með árinu 2006. Innlent 14.10.2005 06:40
Svipað og í olíukreppunni Verð á eldsneyti hefur nú náð svipuðum hæðum og í olíukreppunni á áttunda áratugnum, eftir verðhækkun í gær, sem er rakin til áhrifa frá fellibylnum Katrínu. Útgerðin tapar um fjórum milljörðum á ári vegna hækkana á gasolíu sem hefur hækkað um fjörutíu og átta prósent á einu ári. Innlent 14.10.2005 06:40
Sjálfstæðisflokkur með meirihluta Samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið, fengi Sjálfstæðisflokkurinn mest fylgi, væri boðað til borgarstjórnarkosninga nú, eða 47,7 prósent og átta borgarfulltrúa. Innlent 14.10.2005 06:40
Fagnar afstöðu í flugvallarmálinu Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, segir það stórtíðindi að Sjálfstæðismenn hafi tekið afdráttarlausa afstöðu til flugvallarins í Vatnsmýrinni. Hann fagnar viðsnúningi Sjálfstæðismanna, sem hafi dregið lappirnar í málinu hingað til. Innlent 14.10.2005 06:40
Frjálsyndir og Framsókn engan mann inn Sjálfstæðisflokkurinn fengi 47,7% atkvæða og átta borgarfulltrúa, ef kosið yrði nú til borgarstjórnarskosninga, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið, dagana 25.-29. ágúst, og birt er í blaðinu í dag. Innlent 14.10.2005 06:40
Sækist líklega eftir fyrsta sætinu Líklegt er að Júlíus Vífill Ingvarsson sækist eftir fyrsta sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa stuðningsmenn hans lagt hart að honum að stefna á fyrsta sætið. Innlent 14.10.2005 06:40
Verða sameiginlegt efnahagssvæði Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Jóhannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, undirrituðu í dag samning um frelsi í fjárfestingum og viðskiptum með vörur og þjónustu. Þar með verður Ísland og Færeyjar sameiginlegt efnahagssvæði. Innlent 14.10.2005 06:40
Vill grænt samstarf til vinstri Svandís Svavarsdóttir framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs ákvað í gær að gefa kost á sér í fyrsta sæti V-listans í forvali flokksins sem fram fer 1. október næstkomandi. Innlent 14.10.2005 06:40
Jórunn í fjórða sætið Varaborgarfulltrúarnir Jórunn Frímannsdóttir og Þorgbjörg Helga Vigfúsdóttir gefa kost á sér í fjórða sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Innlent 14.10.2005 06:40
Flugvöllinn burt segir Vilhjálmur Afstaða forystumanns Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn gagnvart Reykjavíkurflugvelli er skýr. Flugvöllurinn skal víkja úr Vatnsmýrinnni. Gísli Marteinn Baldursson segir þetta hafa verið skoðun sína lengi og að hann sé ánægður með að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sé sama sinnis. Innlent 14.10.2005 06:40
Vilhjálmur vill flugvöllinn burt Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi vill Reykjavíkurflugvöll burt. Þar vill hann sjá rísa íbúða- og atvinnubyggð. Aldrei áður hefur forystumaður innan Sjálfstæðisflokksins tekið svo afdráttalausa afstöðu gegn flugvellinum og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi gerði í Íslandi í dag í gær en Vilhjálmur býður sig fram í fyrsta sæti lista Sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Innlent 14.10.2005 06:39
Jórunn stefnir á fjórða sætið Jórunn Frímannsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Jórunn er varaorgarfulltrúi og hefur starfað í Hverfafélagi Sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi síðan 1999. Innlent 17.10.2005 23:42
Nánari tengsl Færeyja og Íslands Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Jóhannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, undirrituðu í gær samning um að koma á fót sameiginlegu efnahagssvæði Íslands og Færeyja. Innlent 14.10.2005 06:40
Harðnandi kosningaslagur Jens Stoltenberg, formaður norska Verkamannaflokksins, hitti tvo helstu leiðtoga samtaka launafólks á ráðstefnu um velferð og valfrelsi í gær, en flokkurinn talar fyrir uppstokkun í opinberum rekstri. Innlent 14.10.2005 06:40
Kosningabarátta á Bláhorninu Gústaf Adolf Níelsson útvarpsmaður gefur kost á sér í áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Hann er hrifnari af Vilhjálmi en Gísla Marteini. </font /></b /> Innlent 14.10.2005 06:40
13% vinna á höfuðborgarsvæðinu Í Gaulverjabæjarhreppi eru áætlaðar skatttekjur á þessu ári lægri á hvern íbúa en framlag á hvern íbúa hreppsins úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Einar Guðni Njálsson, bæjarstjóri Árborgar, segir að framlög jöfnunarsjóðsins á hvern íbúa á Selfossi og annars staðar í Árborg sé varla nema sjöundi hluti af skatttekjum bæjarfélagsins á hvern íbúa. Innlent 14.10.2005 06:40
Kjartan í þriðja sætið Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér í þriðja sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Innlent 14.10.2005 06:40
R-listi fengi átta borgarfulltrúa Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins hefði R-listinn meiri stuðning Reykvíkinga nú, en samanlagður stuðningur við samstarfsflokka um hann. Tæplega helmingur segist hefðu stutt R-listann hefði samstaða náðst um að bjóða aftur fram undir hans nafni. Innlent 13.10.2005 19:46
Stefnir í stórsigur vinstrimanna Allt útlit er fyrir að vinstri flokkarnir í Noregi vinni stórsigur í þingkosningunum sem fara fram í landinu í næsta mánuði. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Norska ríkissjónvarpið og norska Dagblaðið fá vinstri flokkarnir 90 þingsæti af 169 á norska Stórþinginu, en um þriðjungur Norðmanna ætlar að kjósa Verkamannaflokkinn. Innlent 13.10.2005 19:46
Vilja kosningar að hausti Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, vilja gera breytingar á kosningalöggjöfinni á þann veg að kosið verði til Alþingis og sveitarstjórna að hausti en ekki að vori. Ástæðan er sú að þeir telja núverandi fyrirkomulag draga stórlega úr möguleikum ungs fólks á að taka þátt í kosningastarfi þar sem stór hluti þess sé námsmenn sem standi í próflestri á sama tíma. Innlent 13.10.2005 19:46
Leggur til fé til djúpborunar Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja fram fé í hið íslenska djúpborunarverkefni næstu fjögur árin. Markmið verkefnisins er að komast að því hver sé raunverulegur orkuforði landsins þar sem leiða megi að því líkur að nýtanlegar háhitaauðlindir landsins kunni að vera stórlega vanmetnar. Innlent 13.10.2005 19:46
Utanríkisráðherra í Færeyjum Opinber heimsókn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra til Færeyja hófst í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:46