Stj.mál
136 137 138 139 140 141 142 143 144 … 187 ›
Stórsigur sjíta-múslima Flokkabandalag sjíta-múslima vann stórsigur í þingkosningunum í Írak. Það gerðu Kúrdar einnig en súnní-múslimar eru úti í kuldanum. Það gæti valdið miklum vandræðum. Erlent 13.10.2005 18:46
Erfitt að taka við friðargæslunni Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að erfitt yrði fyrir samtökin að taka við friðargæslu í Írak af Bandaríkjamönnum. Annan var spurður um þetta mál á öryggismálaráðstefnu sem nú stendur yfir í Þýskalandi og leist ekki meira en svo á hugmyndina. Hann útilokaði þó ekki að af þessu gætu orðið. Erlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld andstæð evrópulögum Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð niður og eru stjórnvöld þannig að bregðast við gagnrýni ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Menntamálaráðherra leggur fram frumvarp á næstunni þar sem hlutverk RÚV verður endurskilgreint. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:46
Engan glannaskap Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna vill fara varlega með málefni Ríkisútvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:46
Erfitt að taka við friðargæslunni Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að erfitt yrði fyrir samtökin að taka við friðargæslu í Írak af Bandaríkjamönnum. Annan var spurður um þetta mál á öryggismálaráðstefnu sem nú stendur yfir í Þýskalandi og leist ekki meira en svo á hugmyndina. Hann útilokaði þó ekki að af þessu gætu orðið. Erlent 13.10.2005 18:46
Hlynntur niðurfellingu Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins er mjög hlynntur því að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:46
Tryggja verður frelsi RÚV Svanfríður Jónasdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í útvarpsráði, segir að tryggja verði frelsi Ríkisútvarpsins fari það á fjárlög. Innlent 13.10.2005 18:46
Hætta á fleiri kjarnorkuvopnum Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að ef þjóðir heims hertu ekki eftirlit og reglur um kjarnorkuvopn væri hætta á því að hvert landið af öðru kæmi sér upp slíkum vopnum. Erlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld óviðunandi Í þingsályktunartillögu Frjálslynda flokksins sem nú er til umræðu á Alþingi segir að núverandi fjármögnun Ríkisútvarpsins með afnotagjöldum og auglýsingatekjum sé óviðunandi. Innlent 13.10.2005 18:46
Gríðarleg þýðing samgöngubótanna Fyrirhugaðar samgöngubætur á Vestfjörðum hafa gríðarlega þýðingu fyrir byggð í fjórðungnum, að mati Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Norðvesturkjördæmis. Innlent 13.10.2005 18:46
Efnahagur heimsins í hættu Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að kjarnorkuárás hryðjuverkamanna á stórborg á vesturlöndum gæti lagt efnahag heimsbyggðarinnar í rúst. Á ráðstefnu um öryggismál sem nú er haldin í Þýskalandi hvatti hann Bandaríkin og Evrópu til þess að styrkja sameiginlegar varnir heimsins gegn hryðjuverkum. Erlent 13.10.2005 18:46
Draga lærdóm af mistökum ráðherra Ungir jafnaðarmenn segja að draga verði lærdóm af mistökum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherraog Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra í Íraksmálinu. Samtökin vilja fyrir alla muni, og telja víst að þorri þjóðarinnar sé því sammála, að hindra verði að slík mistök geti endurtekið sig. Innlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld RÚV felld niður Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð af samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi á næstu vikum. Þingflokksformanni Framsóknarmanna líst best á nefskatt í staðinn. Innlent 13.10.2005 18:46
Dulbúið orð yfir flugstöð Samgöngumiðstöð er dulbúið orð yfir flugstöð, segir formaður Samtaka um betri byggð og óttast að slík bygging muni festa Reykjavíkurflugvöll í sessi. Formaður Hollvinasamtaka flugvallarins fagnar hins vegar áformunum. Innlent 13.10.2005 18:46
Ingibjörg gleymir holræsagjaldinu "Hún er að segja ósatt," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um þau orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrum borgarstjóra, í Fréttablaðinu á laugardag að álagningarhlutfall fasteignagjalda hafi ekki hækkað. Innlent 13.10.2005 18:46
Þingkosningar í Bretlandi í vor? Búist er við að þingkosningar verði í Bretlandi í maí og útlit fyrir að Verkamannaflokkurinn vinni þá þriðju kosningarnar í röð. Þrátt fyrir mikinn mótbyr, aðallega vegna Íraks, er búist við að Tony Blair leiði flokkinn til sigurs í kosningunum. Erlent 13.10.2005 18:46
NATO komi að friðarmálum Atlantshafsbandalagið á að koma að friðarmálum í deilu Ísraelsmanna og Palestínumanna að sögn Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra bandalagsins. „Við eigum ekki að veigra okkur við stíga fram og bjóða aðstoð okkar til að koma á friðarsamkomulagi í Miðausturlöndum,“ sagði Scheffer á ráðstefnu í Þýskalandi í dag. Erlent 13.10.2005 18:46
Matargjafir notaðar pólitískt Stjórnarandstaðan í afríkuríkinu Zimbabwe segir að ríkisstjórnin noti matargjafir til þess að þvinga fólk til stuðnings við sig í komandi kosningum. Alþjóðlegar hjálparstofnanir sögðu í síðasta mánuði að tæplega sex milljónir manna líði skort í Zimbabwe en íbúar landsins eru tæpar þrettán milljónir. Erlent 13.10.2005 18:46
Landsþing hjá frjálslyndum Frjálslyndi flokkurinn hefur boðað til landsþings 4.-5. mars á Kaffi Reykjavík. Búist er við að núverandi stjórn flokksins, Guðjón A. Kristjánsson formaður, Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður og Margrét Sverrisdóttir ritari, verði öll endurkjörin. Innlent 13.10.2005 15:32
Tvöfalt hærri fasteignaskattar Íbúar í Reykjavík borga ríflega tvöfalt meira í fasteignaskatt nú en þeir gerðu þegar R-listinn tók við fyrir ellefu árum að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að eftir að hafa skoðað ársreikninga borgarinnar síðastliðin tólf ár hafi þessi sláandi tala komið í ljós. Innlent 13.10.2005 15:32
N-Kórea krafðist viðræðna Norður-Kórea krafðist í dag tvíhliða viðræðna við Bandaríkin um kjarnorkuáætlun sína. Kóreumenn tilkynntu í gær að þeir hefðu þegar smíðað kjarnorkusprengjur sem væru tilbúnar til notkunar. Erlent 13.10.2005 15:32
Palestínumenn hætti árásum Forseti Palestínumanna krafðist þess í dag að herskáar hreyfingar Palestínumanna hættu strax öllum árásum á Ísraela. Forsetinn hefur rekið níu foringja úr öryggissveitum sínum. Erlent 13.10.2005 15:32
Fresta leyfisveitingu vínbúðar Bæjarstjórn Hveragerðis frestaði á síðasta fundi sínum að taka afstöðu til beiðni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins um að reka vínbúð að Breiðumörk 1. Í bókun meirihluta bæjarstjórnar segir að afla verði frekari upplýsinga frá ÁTVR um rekstur vínbúðarinnar áður en hægt sé að veita leyfið og var bæjarstjóra falið að afla þeirra upplýsinga. Innlent 13.10.2005 15:32
Rumsfeld reiddist vegna þotna Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, brást reiður við og fannst hann sniðgenginn þegar George Bush Bandaríkjaforseti og Colin Powell, þáverandi utanríkisráðherra, ákváðu að fresta því að kalla orrustuþoturnar fjórar heim frá Keflavíkurflugvelli. „Þetta var dramatískt,“ segir forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:46
Hart deilt á forsætisráðherra Hart var deilt á Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í dag um viðtal Brynhildar Ólafsdóttur, fréttamanns á Stöð tvö, við forsætisráðherra sem sýnt var í gær. Þar lýsti Halldór aðdraganda þess að Ísland samþykkti að styðja innrás Bandaríkjamanna í Írak, afleiðingar þess og ástæður, en það var Össur Skarphéðinsson sem bað um tækifæri til að ræða um viðtalið á Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:46
Fundur vegna viðtals við Halldór Boðað hefur verið til aukafundar á Alþingi í dag til að ræða um viðtal Brynhildar Ólafsdóttur fréttamanns við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, sem birt var á Stöð tvö í gærkvöldi. Það var Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sem óskaði eftir viðræðum um viðtalið. Innlent 13.10.2005 18:46
Efast um trúverðugleikann Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar var dreginn í efa á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan hélt því fram að forsætisráðherra hefði staðfest í viðtali á Stöð 2 að þrýstingur frá Bandaríkjamönnum hefði leitt til ákvörðunarinnar um stuðning við innrásina í Írak. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:46
Sagði vinnubrögð niðurlægjandi Formanni Vinstri - grænna var brugðið yfir viðtali við forsætisráðherra á Stöð tvö í gær og segir að vinnubrögðin, sem hann lýsti varðandi stuðninginn við innrásina í Írak, hafi verið niðurlægjandi fyrir íslensku þjóðina. Stjórnarliðar hvöttu stjórnarandstöðuna til að snúa sér að öðru. Innlent 13.10.2005 18:46
Ekki nóg að sigra í könnunum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ekki nóg að sigra í könnunum. Það séu kosningarnar sjálfar sem gildi. Hún segist þó gleðjast yfir nýrri könnun sem sýnir að átta af hverjum tíu Samfylkingarmönnum telja hana hæfari til formennsku í flokknum en sitjandi formann, Össur Skarphéðinsson. Innlent 13.10.2005 18:46
Þrýst hart á íslensk stjórnvöld Bandaríkjastjórn sótti hart að íslenskum stjórnvöldum að fara á lista hinna viljugu þjóða í Íraksstríðinu og það er þess vegna sem nafn Íslands lendir þar þann 18. mars 2003. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra viðurkennir í viðtali að ákvörðunin um að fara á þennan lista hafi tengst hagsmunum Íslands í varnarsamningunum við Bandaríkin. Innlent 13.10.2005 18:46