Stj.mál
134 135 136 137 138 139 140 141 142 … 187 ›
Bandaríkjamenn vilja viðræður Eftir blóðuga baráttu við uppreisnarmenn í Írak í tvö ár eru Bandaríkjamenn komnir að þeirri niðurstöðu að viðræður séu vænlegasta leiðin til að binda enda á skálmöldina. Erlent 13.10.2005 18:48
Sjóðirnir liggja frystir í banka Sjóðir Bandalags jafnaðarmanna liggja frystir í Landsbankanum og svo virðist sem enginn geti gert tilkall til þeirra. Stefán Benediktsson, fyrrverandi alþingismaður, segir flokkssystkin sín hafa ásælst sjóðina á sínum tíma en ekki haft erindi sem erfiði. Innlent 13.10.2005 18:48
Stjórnin féll í Portúgal Stjórnarandstaðan í Portúgal bar í gær sigur úr býtum í þingkosningum í landinu. Flokkur sósíalista undir stjórn Jose Socrates fékk hreinan meirihluta í fyrsta skipti í sögu landsins. Hinn hægrisinnaði Pedro Santana Lopes hefur því hrökklast úr starfi forsætisráðherra eftir að hafa aðeins gegnt því í rúmlega hálft ár. Erlent 13.10.2005 18:48
Nýtt kvenfélag framsóknar stofnað Tvö félög framsóknarkvenna starfa nú í Kópavogi. Framsóknarfélagið Brynja var stofnað í gær af sextíu og einni konu sem gengu í Framsóknarfélagið Freyju, Félag framsóknarkvenna í Kópavogi, fyrir síðasta aðalfund félagsins. Aðalfundurinn var hins vegar úrskurðaður ólöglegur þar sem láðst hafði að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 18:48
Siv og Una María víki Siv Friðleifsdóttur og Hansínu Björgvinsdóttur var ekki boðið á stofnfund Brynju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi. Óskað er eftir undanþágu til að félagið geti sent fulltrúa á flokksþing og farið fram á að Siv og Una víki sæti úr landsstjórn á meðan fjallað er um málið. Innlent 13.10.2005 18:48
Gleðitár runnu í Palestínu Gleðitár runnu um gervalla Palestínu í dag þegar fimm hundruð palestínskir fangar sneru aftur til síns heima úr ísraelskum fangelsum. Lausn fanganna er hluti af nýsamþykktu vopnahléi Ísraela og Palestínumanna. Erlent 13.10.2005 18:48
Siv undrast að vera ekki boðið Nýtt félag framsóknarkvenna í Kópavogi var stofnað í gær. Að því félagi standa konurnar sem nýlega reyndu að hrifsa til sín völdin í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi. Oddvita flokksins í kjördæminu, Siv Friðleifsdóttur, var ekki boðið á fundinn og undrast hún það. Innlent 13.10.2005 18:48
Yfirlýsingar skaða Landsvirkjun Yfirlýsingar iðnaðarráðherra um einkavæðingu Landsvirkjunar skaða fyrirtækið og grafa undan lánstrausti þess að mati Álfheiðar Ingadóttur, stjórnarmanns í Landsvirkjun. Borgin geti ekki verið áfram í ábyrgð fyrir sextíu milljörðum króna verði fyrirtækið einkavætt. Það rýri verðmæti fyrirtækisins að missa þessar ábyrgðir. Innlent 13.10.2005 18:48
Vill eitt gagnaflutningsnet Flokksráð Vinstri - grænna hvetur til þess að grunnnet Landsímans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar verði sameinuð í eitt gagnaflutningsnet í eigu ríkis og sveitarfélaga. Fundurinn telur mikilvægt að slíkt fjarskiptanet þjóni öllum landsmönnum og verði aðgengilegt öllum aðilum í fjarskiptaþjónustu en einkavæðing Landsímans með grunnnetinu muni leiða af sér mismunun og offjárfestingu sem almenningur þurfi á endanum að borga. Innlent 13.10.2005 18:48
Hyggilegra að fresta undirskrift Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, segir á heimasíðu sinni að borgaryfirvöld hefðu betur frestað því að skrifa undir viljayfirlýsingu um sölu á hlut sínum í Landsvirkjun til ríkisins þar sem fyrirhuguð einkavæðing fyrirtækisins stríði gegn stefnu Vinstri - grænna. Hætta sé því á að R-listinn í Reykjavík gangi sundraður til þessara verka. Innlent 13.10.2005 18:48
Undrast áform iðnaðarráðherra Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir í tilkynningu furðu sinni á bollaleggingum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um sameiningu orkufyrirtækja. Þingflokkurinn mótmælir harðlega öllum áformum ráðherrans um frekari markaðs- og einkavæðingu almannaþjónustu á sviði orkuframleiðslu og orkudreifingar á næstu árum. Innlent 13.10.2005 18:48
Mótmælir reykingabanni Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun vegna lagafrumvarps um bann við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum. Þar ítrekar félagið að það sé óréttlætanlegt að ríkið banni fólki að stunda löglegar athafnir á eign sinni. Innlent 13.10.2005 18:48
Hljóta að geta fyrirgefið Fischer Ef menn gátu fyrirgefið Khadafi Líbíuleiðtoga hljóta þeir að geta fyrirgefið Bobby Fischer, segir utanríkisráðherra, og vill ekki meina að Bandaríkjamenn hafi beitt íslensk stjórnvöld þrýstingi til að draga boð um dvalarleyfi til handa Fischer til baka. Innlent 13.10.2005 18:48
Kristinn ekki sigurvegari Pétur Blöndal alþingismaður er ekki á því að Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður hafi, með endurreisn sinni í Framsóknarflokknum, sigrað flokksforystuna að því er fram kom í máli Péturs í þættinum Íslandi í bítið í morgun. Innlent 13.10.2005 18:47
Frumvarp um reykingabann Siv Friðleifsdóttir og þrír aðrir þingmenn lögðu í gær fram frumvarp á Alþingi um að reykingar yrðu alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum, sem og við aðrar menningar- og félagssamkomur. Innlent 13.10.2005 18:48
Kjarnorkuvopnaeign helsta ógnin Kjarnorkuvopnaeign Asíuríkja er meðal helstu ógna sem Bandaríkjamenn þurfa að fylgjast með að mati yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hryðjuverk eru áfram ofarlega á lista yfir ógnir. Erlent 13.10.2005 18:47
Yfirmaður allrar leyniþjónustu BNA George Bush hefur skipað John Negroponte, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Írak, sem yfirmann allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Embættið er nýtt af nálinni og er stofnun þess liður í aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að reyna að koma í veg fyrir að atburðirnir þann 11. september 2001 endurtaki sig. Erlent 13.10.2005 18:47
Víglína í átökum við Bandaríkin Sýrland er vaxandi vandamál að mati utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Tilgangur bandalags Sýrlendinga og Írana er óljós en því er velt upp hvort það sé eins konar víglína í átökum við Bandaríkin. Erlent 13.10.2005 18:47
Sharon líklega ekki ákærður Dómsmálaráðherra Ísraels mun líklega ekki ákæra Ariel Sharon vegna meintrar fjármálaspillingar frá árinu 1999. Þetta sögðu heimildarmenn innan dómsmálaráðuneytis Ísraela í morgun. Erlent 13.10.2005 18:47
Vilja algert reykingabann Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Innlent 13.10.2005 18:47
Sharon ekki ákærður Engin ákæra verður gefin út á hendur Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vegna spillingarmáls sem allt leit út fyrir að gæti bundið enda á stjórnmálaferil hans. Erlent 13.10.2005 18:47
Fellur portúgalska ríkisstjórnin? Portúgalska ríkisstjórnin mun falla í þingkosningunum um næstu helgi ef marka má skoðanakannanir þar í landi. Jafnaðarmannaflokkurinn sem er í stjórnarandstöðu hefur töluvert forskot á sósíaldemókrata, sem leiða ríkisstjórnina, og samkvæmt sumum könnunum myndu jafnaðarmenn ná hreinum meirihluta ef kosið yrði nú. Erlent 13.10.2005 18:47
Áfengisgjald lækkað um 30% Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis. Innlent 13.10.2005 18:47
Stöndum okkur verr en Írakar Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, benti á það í umræðum um kosningarnar í Írak á Alþingi í fyrradag að hlutfall kvenna á íraska þinginu væri hærra en á Alþingi Íslendinga. Innlent 13.10.2005 18:48
Fischer fær ekki ríkisborgararétt Á fundi allsherjarnefndar í gærmorgun var ákveðið að mæla ekki með því við Alþingi að bandaríska skákmanninum Bobby Fischer yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að svo stöddu. Innlent 13.10.2005 18:48
Ekki vitað um 30 kíló af plútóníum Stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield í Bretlandi geta ekki gert grein fyrir því hvað varð af 30 kílóum af plútóníum sem koma ekki fram í tölum um birgðahald. Umhverfisráðherra hefur óskað upplýsinga frá breskum stjórnvöldum. Erlent 13.10.2005 18:47
Væri ekki á leið til lýðræðis Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef ekki hefði verið gerð innrás í Írak hefðu ekki verið neinar kosningar þar og þjóðin ekki á leið til lýðræðis. Innlent 13.10.2005 18:47
ESB-baráttan að hefjast Baráttan fyrir því að fá stjórnarskrá Evrópusambandsins samþykkta er að hefjast fyrir alvöru. Á sunnudaginn kjósa Spánverjar um stjórnarskrána, fyrstir allra Evrópuþjóða. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, heimsótti Spán í gær til þess að hvetja þarlenda stjórnmálamenn til dáða í báráttunni fyrir að fá stjórnarskrána samþykkta. Erlent 13.10.2005 18:47
Ráðinn upplýsingafulltrúi hjá NATO Utanríkisráðuneytið hefur ráðið Börk Gunnarsson, kvikmyndagerðarmann og blaðamann, sem upplýsingafulltrúa hjá þjálfunarsveitum Atlantshafsbandalagsins í Írak. Að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, er Börkur á förum til Ítalíu þar sem hann fer í vikuþjálfun áður en hann tekur við nýja starfinu í Írak. Innlent 13.10.2005 18:47
Misskipting fer vaxandi Hver íbúi í Reykjavík fær að meðaltali um 10 þúsund krónur í fjárhagsaðstoð á ári og greiðir Reykjavíkurborg um 1,2 milljarða í fjárhagsaðstoð á ári. Það er allt að tífalt hærra á hvern íbúa en í öðrum sveitarfélögum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:47