Settur ráðherra skipar skrifstofustjóra Ásgeir Runólfsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu fjárlaga og rekstrar í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann er skipaður af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, settum félags- og vinnumarkaðsráðherra við skipunina. Bjarni Benediktsson er starfandi félags- og vinnumarkaðsráðherra. Innlent 20.12.2024 14:46
Elma Sif til Stika Solutions Elma Sif Einarsdóttir hefur hafið störf sem forstöðukona sjálfbærni og viðskiptaþróunar hjá tæknifyrirtækinu Stika Solutions. Elma Sif hefur reynslu á sviði umhverfis- og sjálfbærnimála en hún er rekstrarverkfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og umhverfisverkfræðingur frá DTU í Danmörku. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 20.12.2024 13:05
Jóna Björk tekur við Garðheimum Jóna Björk Gísladóttir hefur verið ráðin sem nýr framkvæmdastjóri Garðheima. Hún tekur við starfinu af Kristínu Helgu Gísladóttur, sem hefur ákveðið að láta af störfum eftir farsælan áratug í starfi. Viðskipti innlent 19.12.2024 14:12
Þrír nýir forstöðumenn hjá OK Ingveldur Gísladóttir, Björgvin Arnar Björgvinsson og Gísli Þorsteinsson hafa tekið við starfi forstöðumanna hjá OK. Viðskipti innlent 16. desember 2024 09:06
Fer úr Efstaleiti yfir til SFS Benedikt Sigurðsson sagði skilið við fréttastofu RÚV og hefur nú verið ráðinn aftur til starfa hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar starfaði hann áður sem upplýsingafulltrúi. Innlent 15. desember 2024 13:49
Breytingar hjá Intellecta Baldur Gísli Jónsson hefur verið ráðinn til Intellecta og tekið við sem yfirmaður mannauðsráðgjafar hjá fyrirtækinu. Þá er Sigríður Svava Sandholt nýr meðeigandi Intellecta. Viðskipti innlent 13. desember 2024 23:17
Þau sóttu um embætti landsbókavarðar Alls sóttu fimmtán manns um stöðu landsbókavarðar sem auglýst var laus til umstóknar í október síðastliðinn. Einn dró umsókn sína til baka. Innlent 13. desember 2024 09:44
Ari og Ágúst til Reita Reitir fasteignafélag hefur ráðið tvo sérfræðinga til starfa, Ágúst Hilmarsson sem sérfræðing í greiningum á fjárfestingareignum og Ara Þorleifsson sem verkefnastjóra framkvæmda. Viðskipti innlent 12. desember 2024 14:20
Ásdís Eir, Arnheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju Ásdís Eir Símonardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Lyfju og kemur ný inn í hóp lykilstjórnenda félagsins ásamt Arnheiði Leifsdóttur og Ólöfu Helgu Gunnarsdóttur sem eru nýir forstöðumenn á sínum sviðum. Viðskipti innlent 12. desember 2024 08:59
Tveir fréttamenn RÚV söðla um Benedikt Sigurðsson og Valur Grettisson, fréttamenn á Ríkisútvarpinu, hafa ákveðið að segja skilið við fréttastofu RÚV. Annar er hættur en hinn að vinna sínar síðustu vaktir. Þeir hófu störf á svipuðum tíma í ársbyrjun 2023. Innlent 11. desember 2024 20:23
„Það er ekkert drama í þessu – ég rýk ekkert á dyr“ Skarphéðinn Guðmundsson hefur sagt starfi sínu sem dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins Sjónvarps lausu. Hann hættir um áramótin og segist ekki vita hvað taki við. Innlent 11. desember 2024 14:47
Þau vilja taka við af Helga Grímssyni Tuttugu og tveir sóttu um starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Tilkynnt var í haust að Helgi Grímsson hefði ákveðið að láta af störfum. Innlent 11. desember 2024 10:27
Margrét tekur við nýju hlutverki hjá Advania Margrét Gunnlaugsdóttir hefur tekið við nýrri stöðu framkvæmdastjóra vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Advania á Íslandi. Viðskipti innlent 11. desember 2024 07:22
Sesselja nýr forstjóri Genis Sesselja Ómarsdóttir hefur tekið við stöðu forstjóra hjá Genis hf. Hún tekur við starfinu af Sigurgeiri Guðlaugssyni, sem hefur stýrt fyrirtækinu frá ársbyrjun 2022. Viðskipti innlent 10. desember 2024 12:18
Álfrún leiðir almannatengslin hjá Íslandsstofu Álfrún Pálsdóttir hefur tekið við starfi fagstjóra almannatengsla á markaðssamskiptasviði Íslandsstofu. Álfrún mun leiða almannatengsl Íslandsstofu með áherslu á að efla og styrkja ímynd Íslands og íslenskra útflutningsgreina á erlendum mörkuðum í samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila. Viðskipti innlent 10. desember 2024 10:00
Aðstoðarmaður Katrínar til Aton Bergþóra Benediktsdóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Hún var aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur alla forsætisráðherratíð hennar. Viðskipti innlent 9. desember 2024 10:45
Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Jóhanna Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vals. Hún tekur við starfinu af Styrmi Þór Bragasyni um áramótin. Íslenski boltinn 5. desember 2024 17:31
Forstjóri Dominos til N1 Magnús Hafliðason, sem hefur verið forstjóri Dominos á Íslandi undanfarin ár hefur verið ráðinn forstjóri N1. Viðskipti innlent 5. desember 2024 16:34
Guðrún ráðin bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga Guðrún P. Ólafsdóttur verður bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Ráðning hennar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sveitarfélagsins í gær og tekur formlega gildi eftir bæjarstjórnarfund í næstu viku samkvæmt tilkynningu. Innlent 5. desember 2024 15:27
Bryndís tekur við af Dagmar hjá Austurbrú Bryndís Fiona Ford hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Austurbrúar. Hún tekur við stöðunni af Dagmar Ýr Stefánsdóttur sem tekur von bráðar við starfi sveitarstjóra Múlaþings. Atvinnulíf 4. desember 2024 16:32
Ásgeir Þór og Theodór grípa boltana hans Gríms Starf Gríms Grímssonar yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður auglýst til umsóknar. Ráðið verður í starfið tímabundið til eins árs. Á meðan umsóknarferlinu stendur munu tveir reynsluboltar hjá lögreglunni fylla í skarð Gríms. Innlent 4. desember 2024 11:12
Ragnar Þór hættur hjá VR og Halla tekin við Ragnar Þór Ingólfsson hefur tilkynnt afsögn sína sem formaður VR. Hann var sem kunnugt er kjörinn á Alþingi á laugardag. Halla Gunnarsdóttir, varaformaður, tekur þegar við starfinu ef honum. Innlent 3. desember 2024 13:25
Sigríður Júlía verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verður næsti bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hún tekur við af Örnu Láru Jónsdóttur sem verið hefur bæjarstjóri frá árinu 2022 en náði á laugardaginn kjöri á Alþingi. Innlent 3. desember 2024 12:12
Kristín Hjálmtýsdóttir hætt hjá Rauða krossinum Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, hefur látið af störfum eftir níu ár hjá félaginu. Innlent 2. desember 2024 16:43