Segir strætisvagna ekki menga á við 7500 fólksbíla
Upplýsingafulltrúi Strætó bs. segir að misskilnings gæti í umræðu um umhverfisáhrif strætisvagna en hún fór á flug eftir að þingmaður Pírata fékk svar við fyrirspurn sinni um meðalkolefnisspor hvers ökutækjaflokks. Það sé af og frá að olíuknúinn strætisvagn mengi á við 7500 fólksbíla líkt og haldið hefur verið fram.