Lífið

Hjálmari Erni leið eins og manninum í Slumdog Millionaire í Kviss

Stefán Árni Pálsson skrifar
Albert og Hjálmar flottir í Kviss á laugardagskvöldinu.
Albert og Hjálmar flottir í Kviss á laugardagskvöldinu.

Í síðasta þætti af Kviss mættust Þróttarar og Fylkismenn. Í liði Þróttar mættu þau Þorvaldur Davíð og Vigdís Hafliðadóttir. Lið Fylkis var skipað af Árbæingunum Alberti Brynjari Ingasyni og Hjálmari Erni Jóhannssyni.

Fylkismenn náðu að svara tveimur spurningum í röð rétt og var það Hjálmar Örn sem var sá klári. En svörin við báðum spurningunum gat Hjálmar rekið til atvika í lífi hans sem hann hafði sjálfur reynslu af. 

Svipað og í verðlaunakvikmyndinni Slumdog Millionaire eins og margir ættu að muna eftir.

Hér að neðan má sjá hvaða spurningar Hjálmar negldi í þættinum.

Klippa: Hjálmari Erni leið eins og manninum í Slumdog Millionaire í Kviss





Fleiri fréttir

Sjá meira


×