Sport

Tekur með sér lifrar­pylsu, grjóna­graut og sviðasultu í bakgarðshlaupið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Egill Trausti Ómarsson tekur með sér nóg af rafhlöðum í bakgarðshlaupið.
Egill Trausti Ómarsson tekur með sér nóg af rafhlöðum í bakgarðshlaupið. stöð 2

Píparinn Egill Trausti Ómarsson er til þess að gera nýliði í íslensku hlaupasenunni. Hann tekur þátt í sínu þriðja bakgarðshlaupi um helgina og stefnir þar á að hlaupa 24 hringi.

Bakgarðshlaup Náttúruhlaupa hefst í Heiðmörk á morgun. Egill verður þar á meðal keppenda en hann hljóp einnig í Heiðmörk fyrir ári og í Öskjuhlíðinni í maí. Garpur Elísabetarson tók Egil tali fyrir hlaup helgarinnar.

Egill hljóp sextán hringi í sínu fyrsta bakgarðshlaupi og var nokkuð sáttur með þann árangur, þrátt fyrir takmarkaðan undirbúning.

„Þetta gekk bara flott. Við tókum sextán hringi. Mér fannst það ganga vel. Ég tók með mér nokkra lifrarpyslukeppi,“ sagði Egill.

Hann ætlaði sér stærri hluti í sínu öðru bakgarðshlaupi í Öskjuhlíðinni í maí en gerði mistök í undirbúningnum fyrir það.

„Ég var með yfirlýst markmið. Ég ætlaði að fara sólarhring sem eru 160,5 kílómetrar. En ég vanmat það alveg rosalega því ég fór inn í fyrsta bakgarðinn, tók sextán hringi óundirbúinn. Þá var ég búinn að hlaupa eitthvað smá um sumarið. Mistökin þar voru að fara ekki inn með tilbúið matarplan. Ég hljóp bara inn í hléinu, tók mér lúku af bláberjum og hélt bara áfram. Þetta gengur ekkert mikið lengur en einhverja x hringi.“

Klippa: Egill sýnir hvað hann tekur með sér í bakgarðshlaupið

Egill er betur undirbúinn að þessu sinni og stefnir á að hlaupa 24 hringi. Garpur fékk hann til að sýna sér farangurinn sem hann tekur með sér í hlaupið. Þar kennir ýmissa grasa.

„Í raun er þetta ekkert voða flókið. Ég er einfaldur maður og vill hafa hlutina frekar skipulagða,“ sagði Egil en viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Bakgarðshlaupið í Heiðmörk hefst klukkan 9 á laugardaginn og verður í beinni útsendingu á Vísi.


Tengdar fréttir

„Djúpir dalir en þú kemst upp úr þeim“

„Þetta verður vont á einhverju tímabili. Þá má ekki hætta,“ segir Elísa Kristinsdóttir, hin óvænta stjarna í bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð síðasta vor, þegar hún ráðleggur keppendum fyrir Bakgarðshlaup Náttúruhlaupa sem hefst í Heiðmörk á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×