Sport

Dagskráin í dag: Dregið í riðla Meistaradeildar, NFL, golf og rafíþróttir

Atli Arason skrifar
Giorgio Marchetti og Paulo Sousa draga nafn Atletico Madrid úr pottinum.
Giorgio Marchetti og Paulo Sousa draga nafn Atletico Madrid úr pottinum. Getty Images

Útsláttarkeppnin á BLAST Premier í Counter-Strike, þrjú stórmót í golfi og NFL-deildin eru á meðal níu beinna útsendinga á sport rásum Stöðvar 2 í dag. 

Stöð 2 eSport

Upphitun fyrir fjórða dag á BLAST Premier mótinu í CS:GO hefst klukkan 10.30.

Fyrsta útsláttareinvígið á BLAST Premier fer af stað klukkan 11.00 en þar mun Complexity keppa við OG.

Klukkan 14.30 byrjar viðureign Evil Geniuses og Ninjas in Pyjamas á BLAST Premier.

G2 mun svo etja kappi við BIG í sömu keppni, í beinni útsendingu klukkan 18.00.

Stöð 2 Golf

Klukkan 11.30 er Omega European Masters á DP World Tour á dagskrá.

TOUR Championship mótið á PGA mótaröðinni hefst klukkan 17.00.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 16.00 verður dregið í riðlakeppni Meistaradeild Evrópu í beinni útsendingu.

Houston Texans og San Francisco 49ers mætast á miðnætti í leik af undirbúningstímabili NFL deildarinnar.

Stöð 2 Sport 4

Canadian Pacific er á í beinni útsendingu klukkan 13.30 en Canadian Pacific er hluti af LPGA mótaröðinni

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×