Veður

Suð­læg átt og hiti að á­tján stigum norð­austan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig í dag.
Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig í dag. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, með skúrum í dag, einkum sunnan- og vestanlands.

Spáð er þurru og björtu veðri með köflum á Norðausturlandi en líkur á síðdegisskúrum þar og þokuloft við sjávarsíðuna. Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig í dag, hlýjast norðaustantil.

„Þetta veður heldur áfram á fimmtudag en svo verður breyting á föstudag.

Austlæg átt og víða rigning á föstudag. Svo snýst í norðanátt um hádegi og dregur hægt úr úrkomu á vestanverðu landinu seinnipartinn. Hiti 7 til 12 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðlæg átt, víða 5-10 m/s, skýjað með köflum og víða skúrir, einkum á sunnan- og vestanverðu landinu. Yfirleitt bjart á Norðausturlandi en þokubakkar við sjávarsíðuna. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast inn til landsins norðaustantil.

Á föstudag (lýðveldisdagurinn): Austlæg átt 5-10 og rigning með köflum, einkum sunnanlands. Snýst í norðlæga átt seinnipartinn. Hiti 8 til 14 stig.

Á laugardag: Norðvestan 5-13 m/s og rigning austanlands en léttir til annars staðar. Hiti 9 til 16 stig.

Á sunnudag:Suðvestanátt og skýjað en þurrt á vestanverðu landinu en dálítil væta um kvöldið. Annars bjart að mestu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austantil.

Á mánudag og þriðjudag (sumarsólstöður): Vestlæg átt og lítilsháttar væta víða um landið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnantil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×