Veður

Frysti í byggð í fyrsta skipti í tvo mánuði

Atli Ísleifsson skrifar
Spákort fyrir klukkan 15 í adg. Hiti á landinu í dag verður á bilin tíu til fimmtán stig að deginum.
Spákort fyrir klukkan 15 í adg. Hiti á landinu í dag verður á bilin tíu til fimmtán stig að deginum. Veðurstofan

Það gengur í strekkings suðvestanátt norðvestantil á landinu, en annars verður vindur hægari. Frekar þungbúið verður vestantil á landinu með lítilsháttar vætu öðru hverju, en léttara yfir fyrir austan og þurrt. Hiti verður á bilinu tíu til fimmtán stig að deginum.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það nái síðan að létta víðast hvar til í kvöld og nótt og víða verði bjart og fallegt veður á morgun.

Ennfremur segir frá því að það mældist vægt frost á nokkrum láglendisstöðvum seint í gærkvöldi og í nótt á Norðausturlandi, enda var hægviðri á landinu og einhverjar glufur hafa myndast í skýjahulunni.

„Mesta frostið mældist tæplega 2 stig á Staðarhóli. Þetta er í fyrsta skipti sem frystir í byggð í meira en tvo mánuði (júlí og ágúst voru alveg frostlausir) og markar því lok á óvenjulanga röð frostlausra daga í byggðum landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjart, en þykknar upp V-til þegar kemur fram á daginn. Hiti 10 til 15 stig að deginum.

Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil væta með köflum, en lengst af bjartviðri SA-til. Kólnar heldur V- og N-lands.

Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða bjart. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst.

Á sunnudag: Gengur í ákveðna suðaustanátt með talsverðri rigningu S- og V-lands, en hægari og þurrt lengst af NA-til. Hlýnandi.

Á mánudag: Sunnanátt og rigning, en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA-til.

Á þriðjudag: Útlit fyrir að dragi úr vindi og úrkomu en áfram milt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×