Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar Kristján Már Unnarsson skrifar 1. nóvember 2020 22:19 Ítalska flugvélin Tecnam P2012. Rafmagnsflugvél Tecnam og Rolls Royce verður byggð á grunni þessarar vélar. Tecnam
Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Flugvélin kallast P-Volt og verður í flokki smærri farþegavéla fyrir styttri og meðallangar flugleiðir. Rafmagnsflugvélin verður byggð á grunni hinnar ellefu sæta Tecnam P2012-vélar ítalska fyrirtækisins. Hún er hugsuð sem fjölnota flugvél; sem níu sæta farþegavél, fraktvél, sjúkraflugvél eða til sérhæfðra verkefna. Miðað við stærð gæti hún hentað rekstri íslenskra flugfélaga eins og Ernis, Mýflugs og Norlandair. Svona á Tecnam P-VOLT, rafmagnsflugvél Tecnam og Rolls Royce, að líta út.Tecnam Fyrirtækin Tecnam og Rolls Royce gefa annars lítið upp um tæknilega eiginleika flugvélarinnar. Þau segja ekkert um hraða hennar né flugþol, né hvenær ætlunin sé að hún verði tilbúin. Segjast þó stefna að því að þetta verði fyrsta rafmagnsflugvélin af þessari stærð sem komi í almenna notkun og að hún verði áreiðanlegri, viðhaldsminni, endingarbetri og mun hagkvæmari en hefðbundnar flugvélar. Tecnam og Rolls-Royce voru áður komin í samstarf með austurríska vélaframleiðandanum BRP-Rotax um þróun lítillar einshreyfils fjögurra sæta hybrid-flugvélar. Sú vél er einnig byggð á grunni bensínknúinnar Tecnam-vélar. Tecnam hefur sérhæft sig í smíði smærri flugvéla og skapað sér gott orð á því sviði. Þannig keypti Flugskóli Íslands fyrir fimm árum fjórar nýjar 2ja sæta Tecnam-kennsluvélar beint frá verksmiðjunum en þær eru staðsettar norðan við Napóli. Þá er Flugskólinn Geirfugl, stærsti flugklúbbur landsins, með fjögurra sæta Tecnam-vél. Rolls Royce-rafmagnshreyfillinn keyrður upp. Honum er ætlað að setja hraðamet á rafmagnsflugvél.Rolls Royce Rolls Royce, sem er næststærsti framleiðandi flugvélahreyfla í heiminum, vinnur að öðru athyglisverðu þróunarverkefni á sviði rafmagnsflugs; að smíða nægilega öflugan hreyfil til að setja hraðamet á rafmagnsflugvél. Verkefnið kallast ACCEL og er unnið í samstarfi við rafvélaframleiðandann YASA og flugþróunarfélagið Electroflight. Framleiðendur stefna að því að þessi flugvél nái yfir 480 kílómetra hraða og setjið hraðamet rafmagnsflugvélar.Rolls Royce, Electroflight Fyrirtækin hafa þegar sýnt myndband af uppkeyrslu á 500 hestafla rafmagnshreyfli framan á flugvélargrind vélar sem kallast „IonBird“. Stefnt er að fyrsta flugi snemma á næsta ári og er vonast til að rafmagnsflugvélin nái yfir 300 mílna hraða, eða yfir 480 kílómetra hraða á klukkustund. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í júní þegar einshreyfils níu-sæta rafmagnsflugvélin MagniX flaug í fyrsta sinn:
Fréttir af flugi Umhverfismál Loftslagsmál Samgöngur Orkumál Ítalía Tengdar fréttir Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára. 9. júní 2020 23:24 Kynna rafknúnar vetnisvélar sem leið til orkuskipta í flugi Dash 8-flugvélum, eins og þeim sem notaðar eru hérlendis í innanlandsfluginu, verður hægt að fljúga á mengunarlausu vetni eftir fjögur ár í stað flugvélabensíns, nái áform bandarísks fyrirtækis fram að ganga. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem milliorkugjafa fyrir rafknúnar flugvélar. 12. október 2020 22:12 Samfylkingin vill rafvæðingu flugsins á samgönguáætlun Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt til á Alþingi að rafvæðing styttri flugferða verði strax sett inn á samgönguáætlun. Fyrsti flutningsmaður, Albertína Elíasdóttir, segir raunhæft að innanlandsflugið verði rafvætt á næstu fimm til átta árum. 10. júní 2020 23:33 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Viðskipti innlent Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára. 9. júní 2020 23:24
Kynna rafknúnar vetnisvélar sem leið til orkuskipta í flugi Dash 8-flugvélum, eins og þeim sem notaðar eru hérlendis í innanlandsfluginu, verður hægt að fljúga á mengunarlausu vetni eftir fjögur ár í stað flugvélabensíns, nái áform bandarísks fyrirtækis fram að ganga. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem milliorkugjafa fyrir rafknúnar flugvélar. 12. október 2020 22:12
Samfylkingin vill rafvæðingu flugsins á samgönguáætlun Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt til á Alþingi að rafvæðing styttri flugferða verði strax sett inn á samgönguáætlun. Fyrsti flutningsmaður, Albertína Elíasdóttir, segir raunhæft að innanlandsflugið verði rafvætt á næstu fimm til átta árum. 10. júní 2020 23:33