Varaformaður West Ham telur sanngjarnt að dæma tímabilið úr sögunni Ísak Hallmundarson skrifar 14. mars 2020 14:45 Verði tillaga Brady samþykkt, fær Liverpool ekki fyrsta meistaratitil sinn í 30 ár vísir/getty
Karren Brady, varaformaður West Ham United, telur sanngjarnt að aflýsa þessu tímabili í ensku deildinni og láta það ekki gilda. Enska Úrvalsdeildin tilkynnti í gær ákvörðun sína um að fresta öllum leikjum til 4. apríl í fyrsta lagi en nokkur félög eru á móti því að keppni verði haldið áfram þar sem það gæti verið fjárhagslega íþyngjandi. ,,Það er ekki hægt að komast hjá því að hugsa um þann möguleika að öllum deildum innan Englands verði aflýst og þetta tímabil dæmt ógilt ef leikmennirnir geta ekki spilað leikina.“,,Úrvalsdeildin er að vonast eftir því að frestun leikja um þrjár vikur verði til þess að hægt verði að klára mótið, en það gætu verið draumórar,“ sagði Brady. ,,Þar sem að þetta hefur áhrif á leiki í Úrvalsdeildinni og neðri deildum er eina sanngjarna leiðin að dæma tímabilið ógilt. Hver veit hverjir hefðu komist upp og farið niður um deild ef allir leikirnir væru spilaðir? Auðvitað yrði þetta mikill skellur fyrir Liverpool sem yrðu rændir fyrsta titlinum í 30 ár. Félögin munu ræða þetta við deildina á neyðarfundi í næstu viku,“ sagði Brady sem hefur greinilega áhyggjur af því hvað verður um liðin í fallsæti ef fleiri leikir verða ekki spilaðir. Liverpool eru eins og stendur aðeins tveimur sigrum frá fyrsta Úrvalsdeildartitlinum í 30 ár og yrði áfallið mikið ef ekkert verður úr þeim titli. Þetta yrðu einnig gríðarleg vonbrigði fyrir Leeds United ef tímabilið yrði flautað af, en Leeds var á góðri leið með að komast upp í deild þeirra bestu í fyrsta sinn síðan 2004.
Enski boltinn Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Sjá meira