Fótbolti

Tapið fyrir United „mesti brandari sögunnar“

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Meunier í leiknum við Manchester United í París
Meunier í leiknum við Manchester United í París vísir/getty
Tap Paris Saint-Germain fyrir Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á nýliðnu tímabili er mesti brandari í sögu fótboltans að mati Thomas Meunier.

PSG vann 2-0 á Old Trafford í fyrri leik liðanna en tapaði 3-1 á heimavalli og Manchester United fór áfram á fleiri útivallarmörkum.

„Þetta var mesti brandari í sögu fótboltans,“ sagði Meunier við Le Parisien.

„Ég hefði veðjað einni milljón evra á að við myndum ekki tapa.“

„Þeir fengu ekki einu sinni færi en skoruðu þrjú mörk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×