Fótbolti

Fyrsta tap Verona í fimm leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Emil er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Kasakstan og Eistlandi í lok mánaðarins.
Emil er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Kasakstan og Eistlandi í lok mánaðarins. vísir/afp
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn þegar Verona beið lægri hlut fyrir Lazio á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur 2-0, Lazio í vil.

Þetta var fyrsta tap Verona í fimm leikjum en liðið er í 16. sæti deildarinnar með 32 stig, 11 stigum frá fallsæti.

Lazio er hins vegar í 3. sæti en liðið hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið sex deildarleiki í röð.

Hörður Björgvin Magnússon var ekki í leikmannahópi Cesena sem tapaði 0-1 fyrir Roma á heimavelli.

Cesena er í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×