Viðskipti erlent

Danskir stjórnendur hafa lítið álit á FIH bankanum

Ímynd FIH bankans meðal danskra stjórnenda er ein sú versta meðal danskra fyrirtækja. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum Berlingske Tidende um hvaða fyrirtæki í Danmörku njóta mest álits meðal stjórnendanna.

Fjallað er um málið á vefsíðu börsen. Þar segir að alls hafi 4.500 stjórnendur verið spurðir álits í þessari könnun. FIH bankinn lenti í fjórða neðsta sæti í könnuninni. Fyrir neðan FIH voru dönsku járnbrautirnar DSB, vindmyllufyrirtækið Vestas og SAS flugfélagið.

Bjarne Graven bankastjóri FIH bankans viðurkennir í samtali við börsen að bankinn glími við ímyndarvanda. Hinsvegar standi til að bæta ímynd bankans á næstu tveimur árum.

Graven segir að einn mesti ímyndarskaðinn hafi komið vegna eignarhalds Kaupþings á bankanum hér á árum áður. Það hafi ekki heldur hjálpað til að bankinn hefur stöðugt tapað fé undanfarin tæp þrjú ár og þurft á miklum stuðningi frá danska ríkinu að halda.

Graven segir að í dag séu viðskiptavinir FIH almennt ánægðir með bankann.

Eins og margoft hefur komið fram í fréttum eru endurheimtur á yfir 3 milljarða danskra kr. seljendaláni Seðlabankans til kaupenda FIH bankans árið 2010 bundnar við gengi FIH fram til ársloka á næsta ári. Sem stendur virðist þetta vera að mestu glatað fé. Sjá nánar hér.

FIH bankinn hefur hinsvegar rétt aðeins úr kútnum á þessu ári og þess má geta að á fyrsta ársfjórðungi skilaði hann hagnaði í fyrsta sinn undanfarn 10 ársfjórðunga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×