Viðskipti erlent

Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur"

Mark Zuckerberg er nú giftur.
Mark Zuckerberg er nú giftur. mynd/afp
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það heilaga með því að breyta hjúskaparstöðu sinni á áðurnefndu sköpunarverki sínu Facebook.



Setti hann því punktinn yfir i-ið á ansi annasamri viku en á mánudag átti hann 28 ára afmæli, sama dag útskrifaðist unnusta hans og núverandi eiginkona úr læknisfræði, á föstudag fór Facebook á hlutabréfamarkað og á laugardag gekk hann í hjónaband.

Þegar þetta er skrifað höfðu rúmlega sexhundruð þúsund manns tilkynnt að þeim líkaði ráðahagur Zuckerbergs á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×