Fótbolti

Real greiddi Inter 8 milljónir Evra fyrir Mourinho

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Mourinho er ekki ódýr.
Mourinho er ekki ódýr. GettyImages
Jose Mourinho er tekinn við Real Madrid eins og allir vita. Það tók sinn tíma að staðfesta það þar sem Real og Inter deildu um hversu mikið spænska félagið þyrfti að borga því ítalska.

Upphæðin nemur 8 milljónum Evra. Inter vildi reyndar fá 16 milljónir en Real náði að lækka það um helming.

Ljóst var fyrir löngu síðan að Mourinho tæki við en hnífurinn í kúnni strandaði á þessari tölu.

Mourinho er nú að snúa sér að því að fá leikmenn til félagsins og byrjar væntanlega á Maicon, sem hann var með hjá Inter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×