Innlent

Guðbjartur og Séra Karl eru sigurvegarar

Guðbjartur Hannesson, skólastjóri á Akranesi, varð efstur í próffkjöri Samfylkingar í NV kjördæmi og gæti tekið við þingsæti Jóhanns Ársælssonar, sem gaf ekki kost á sér. Karl Matthíasson, sem var þingmaður fyrir Samfylkinguna 2001-2003, varð í öðru sæti og endurheimtir því e.t.v. þingsæti sitt. Anna Kristín Gunnarsdóttir, sem hefur skipað hitt þingsæti Samfylkingar í NV kjördæmi á þessu kjörtímabili, varð í þriðja sæti, en flokkurinn fékk aðeins tvo þingmenn í kjördæminu í Alþingiskosningunum 2003 og Anna Kristín gæti því misst sæti sitt á þingi.

Um 1700 manns kusu í 16 kjördeildum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Atkvæði voru talin á Akranesi. Lokastaða fjögurra efstu frambjóðendanna varð þessi:

 

1. Guðbjartur Hannesson, skólastjóri, Akranesi - 477 atkvæði í 1.

2. Séra Karl Matthíasson, fyrrverandi alþingismaður, Reykjavík - 552 atkvæði í 1.-2.

3. Anna Kristín Gunnarsdóttir, alþingismaður, Sauðárkróki - 582 atkvæði í 1.-3.

4. Sigurður Pétursson, bæjarfulltrú, Ísafirði - 790 í 1.-4.

Leiðir lista Samfylkingarinnar í NV kjördæmi
Guðbjartur Hannesson er 56 ára, kennari að mennt frá Kennaraskóla Íslands en einnig með tómstundakennarapróf frá Kaupmannahöfn, stjórnunarnám frá Kennaraháskóla Íslands og meistaranám í "Fjármálum og menntun" frá Lundúnarháskóla.

Guðbjartur hefur verið skólastjóri Grundaskóla á Akranesi í 25 ár eða frá stofnun skólans og sat í bæjarstjórn og bæjarráði Akraness í 12 ár þar sem hann m.a. gengdi embætti formanns bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar. Guðbjartur starfaði 5 ár í bankaráði Landsbanka Íslands og var jafnframt eitt ár í bankaráði Heritable-banka í London (eign LÍ). Hann hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar og hefur gengt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum sveitarfélagsins og svæðisskrifstofu Vesturlands.

Guðbjartur sat í miðstjórn og framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins og gegndi þar formennsku. Hann er einn af stofnfélögum Samfylkingarinnar og fyrsti formaður Akraneslistans forvera Samfylkingarinnar á Akranesi. Hann er í Framtíðarhópi Samfylkingarinnar.

Guðbjartur er giftur Sigrúnu Ásmundsdóttur iðjuþjálfa. Þau eiga tvær dætur, Birnu og Hönnu Maríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×