Innlent

Ofbeldisalda í Sao Paulo

Sjö manns hafa látist undanfarna tvo daga í árásum glæpagengja í Sao Paulo í Brasilíu. Mikil skelfing ríkir í borginni en glæpagengin hafa beint árásum sínum gegn lögreglu og almennum borgurum. Mikil ofbeldisalda ríkir í Sao Paulo en ekki er meira en tveir mánuðir síðan 200 manns létust af völdum gengjaóeirða. Frá því á aðfaranótt miðvikudags hefur tæplega hundrað árásum verið beint að strætisvögnum, lögreglustöðvum, bönkum og stórmörkuðum svo eitthvað sé nefnt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×