Óvíst með Auðun 8. október 2005 00:01 "
Það er farið að líta betur út með Gunnar Heiðar en það er enn óvissa með Auðun fyrir þennan leik gegn Svíþjóð," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í gær, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar. Sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson gat ekki leikið með í vináttulandsleiknum gegn Póllandi vegna meiðsla en útlitið varðandi hann er orðinn mun bjartara og verður hann með á æfingu hjá landsliðinu í dag. Gunnar hefur verið í fantaformi í sænska boltanum að undanförnu og er markahæsti leikmaður deildarinnar þar. Hannes Þ. Sigurðsson sem lék í sókninni gegn Póllandi stóð sig vel og verður að teljast líklegt að hann verði aftur með A-landsliðinu gegn Svíþjóð. "Það er ekkert komið í ljós varðandi Auðun en hann er þó farinn að skokka. Það er samt ekkert hægt að segja meira fyrr en hann prófar að sparka í bolta," sagði Logi en Auðun fór meiddur af velli í leiknum gegn Póllandi eftir að hafa fengið högg á hnéð. Hann var tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla á hinu hnénu og kemur það í ljós þegar nær dregur hvort hann geti leikið gegn Svíþjóð. Mótherjar okkar eru einnig í meiðslavandræðum fyrir leikinn en nokkrar skærustu stjörnur Svía verða fjarri góðu gamni í leiknum sökum meiðsla. Íslenski hópurinn kom til Svíþjóðar í gær og horfði á mótherja okkar á miðvikudag leika gegn Króatíu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er í sjokki eftir þennan leik“ Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Ármenningar taplausir á toppnum Harðneitar því að hafa rekið við í leik Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Mikið fjör og leikgleði á fjölmennu ungmennamóti Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Sjá meira