Marel
1 2 3 4 5 … 5 ›
Mestu þyngslin á íslenska markaðnum en tæknirisar tosað upp ávöxtun erlendis Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur lækkað hvað mest á heimsvísu, ásamt markaðnum í Kólumbíu, á meðan ávöxtun hlutabréfa er með ágætum í mörgum kauphöllum erlendis. Viðmælendur Innherja benda á að ekki séu sambærileg félög í íslensku kauphöllinni og hafa verið að leiða hækkanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Þá hafi starfsumhverfi á Íslandi verið krefjandi með miklum launahækkunum síðustu misseri ásamt mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi, umfram það sem þekkist í öðrum löndum. Innherji 25.11.2023 08:35
Tilboðið í Marel í lægri kantinum Bandarískt fyrirtæki hefur greint frá áhuga sínum á að kaupa Marel. Er mögulegt tilboð 38 prósent hærra en verðmat Marel á íslenskum markaði. Greinandi segir tilboðið þó vera í lægri kantinum. Viðskipti innlent 24.11.2023 11:57
Hugsanlegt tilboð JBT níu prósentum lægra en mat erlendra greinenda Matvælatæknifyrirtækið John Bean Technologies Corporation býður níu prósent lægra verð í Marel en erlendir greinendur meta íslenska félagið á að meðaltali. Verði af tilboðinu myndi JBT greiða 25 prósent í reiðufé og 75 prósent í formi eigin bréfa. Kauphöllin hefur opnað fyrir viðskipti með bréf Marels á nýjan leik. Innherji 24.11.2023 11:06
Bandarískur tilboðsgjafi metur Marel á 363 milljarða króna Marel hefur tilkynnt að John Bean Technologies Corporation (JBT) sé fyrirtækið sem lagði fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. Viðskipti innlent 24.11.2023 10:38
Marel rauk upp áður en lokað var fyrir viðskipti Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf í Marel í morgun. Gengi bréfanna rauk upp um tæplega þrjátíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var um óskuldbindandi viljayfirlýsingu um kaup á öllu hlutafé félagins. Opnað hefur verið fyrir viðskiptin á ný. Viðskipti innlent 24.11.2023 10:24
Kauphöllin stöðvaði viðskipti með Marel eftir 29 prósenta hækkun Marel hækkaði um 29 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins eftir að tæknifyrirtækið upplýsti um að því hefði borist óskuldbindandi viljayfirlýsing um mögulegt tilboð í öll hlutabréf þess. Ekki var greint frá mögulegu gengi í viðskiptunum né hver gerði tilboðið. Í kjölfarið lokaði Kauphöllin fyrir viðskipti með bréfin. Innherji 24.11.2023 10:04
Marel tilkynnir um mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu Marel hefur borist óskuldbindandi viljayfirlýsing varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. Frá þessu er greint á vef Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 24.11.2023 06:31
Leysti líka til sín bréf Þórðar og fer með nærri tíu prósenta hlut í Eyri Invest Arion fer með nálægt tíu prósenta eignarhlut í Eyri Invest eftir að bankinn leysti sömuleiðis til sín hluta af bréfum í fjárfestingafélaginu sem höfðu verið í eigu Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns til meira en tveggja áratuga, í tengslum við veðkall sem var gert á Árna Odd, son Þórðar og þáverandi forstjóra Marels. Feðgarnir fara nú saman með nokkuð minna en þriðjungshlut í Eyri en hluthafar félagsins, einkum bankar og lífeyrissjóðir, skoða nú að koma að stórri hlutafjáraukningu til að létta á þungri skuldastöðu. Innherji 11.11.2023 16:28
Marel rýkur upp í milljarðaviðskiptum Gengi hlutabréfa í Marel hefur rokið upp um 6,12 prósent í Kauphöllinni það sem af er degi. Viðskipti með bréfin hafa verið miklum mun meiri í dag en síðustu tvo daga, þegar gengið hefur dalað, upp á ríflega 1,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 10.11.2023 13:31
Eyrir áformar að styrkja stöðuna með tólf milljarða innspýtingu frá hluthöfum Stjórnendur og ráðgjafar Eyris Invest eiga nú í samtölum við hluthafa fjárfestingafélagsins um að leggja því til umtalsvert nýtt hlutafé í því skyni að treysta fjárhagsstöðuna eftir mikið verðfall á stórri hlutabréfaeign þess í Marel. Landsbankinn gerði í lok síðasta mánaðar veðkall í rúmlega eins prósenta hlut Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóri Marels, í Eyri Invest í gegnum samnefnt eignarhaldsfélag hans eftir að það uppfyllti ekki lengur skilmála í lánasamningi við bankann. Innherji 10.11.2023 11:57
Útlit fyrir að það sé „loksins farið að birta til hjá Marel“ Kaflaskil hafa orðið í rekstri Marels og framlegðarhlutfall fyrirtækisins, sem er samt enn lágt í sögulegu samhengi, virðist loks vera að ná sér á strik eftir „viðstöðulausa lækkun í mörg ár.“ Útlit er fyrir að það sé „loksins að birta til hjá Marel“, segir hlutabréfagreinandi sem hefur hækkað lítillega verðmat sitt á félaginu. Innherji 10.11.2023 07:59
Hvað er greiðslustöðvun? Gríðarlega athygli vakti í gær þegar Árni Oddur Þórðarson, sem lengi hefur verið einn farsælasti viðskiptamaður landsins, tilkynnti að hann hafði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvun er alls ekki algengt fyrirbæri og því vaknar spurningin: Hvað er greiðslustöðvun? Viðskipti innlent 9.11.2023 14:21
Árni Oddur fær samþykkta greiðslustöðvun Hlutabréf í Marel hafa fallið um ríflega sextíu prósent á tveimur árum. Arion banki gerði því veðkall í hlutabréf forstjórans sem hætti í kjölfarið. Hann segir bankann ekki hafa farið að lögum því hann hafi lagt fram nægar tryggingar. Fráfarandi forstjóri hefur nú fengið samþykkta greiðslustöðvun. Viðskipti innlent 8.11.2023 18:38
Marel lækkaði um rúm sex prósent Gengi bréfa í Marel lækkaði um 6,42 prósent í Kauphöllinni í dag. Í gærkvöldi var greint frá því að forstjóri félagsins væri hættur eftir tíu ára starf. Viðskipti innlent 8.11.2023 17:59
Nýr forstjóri með raunhæfari rekstrarmarkmið væri gott skref fyrir Marel Það gæti verið heilladrjúgt fyrir gengisþróun Marels að fá nýjan forstjóra sem setur rekstrarmarkmið sem félagið getur náð. Við það öðlast aftur fjárfestar trú á félaginu, segir greinandi í samtali við Innherja. Innherji 8.11.2023 16:07
Arion eignaðist 1,2 prósent í Marel með innlausninni Forstjóri Marel síðustu tíu ár er hættur eftir að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest stærsta hluthafa í fyrirtækinu. Arion banki eignast næstum fimm prósent í fjárfestingarfélaginu eftir innlausnina. Viðskipti innlent 8.11.2023 13:01
Marel lækkar um sex prósent í Hollandi eftir að Arion leysti til sín bréf Árna Odds Marel hefur lækkað um ríflega sex prósent í Kauphöllinni í Hollandi í morgun, en um þrjú prósent í íslensku kauphöllinni, eftir að forstjóri fyrirtækisins lét af störfum í kjölfar þess að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, kjölfestufjárfesti í Marel. Innherji 8.11.2023 10:33
Arion banki tjáir sig ekki um mál Árna Odds Engar skýringar fást á því frá Arion banka hvers vegna bankinn leysti til sín hlutabréf Árna Odds Þórðarsonar sem lét í gær af störfum sem forstjóri Marels. Þetta kemur fram í svörum frá bankanum. Viðskipti innlent 8.11.2023 10:09
Árni Oddur hættir hjá Marel vegna deilna við Arion Árni Oddur Þórðarson er hættur sem forstjóri Marel eftir tíu ára starf. Það gerði hann vegna réttaróvissu eftir að Arionbanki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, stórum hluthafa í Marel. Viðskipti innlent 7.11.2023 19:10
Marel ætti að fara í hlutafjáraukningu til að grynnka á miklum skuldum Hlutabréfaverð Marels rauk upp í byrjun vikunnar eftir að greinendur ING hækkuðu talsvert verðmat sitt á félaginu en þrátt fyrir að uppgjör þriðja fjórðungs hafi verið undir væntingum telja þeir jákvæð teikn á lofti í rekstrinum sem endurspeglist meðal annars í minnkandi kostnaðargrunni. Að sögn hollenska bankans væri skynsamlegt fyrir Marel að ráðast í hlutafjáraukningu í því skyni að minnka óhóflega skuldsetningu félagsins. Innherji 1.11.2023 18:15
Erlendir greinendur lækka verðmat á Marel en Berenberg mælir með kaupum Erlendir greinendur hafa lækkað verðmat sitt á Marel eftir uppgjör þriðja ársfjórðungs sem olli mörgum vonbrigðum en sumir benda á að minnkandi kostnaður gefi til kynna að undirliggjandi rekstur sé að batna. Hlutabréfaverð Marels, sem er komið á sömu slóðir og snemma árs 2018, hefur fallið um sjö prósent á síðustu tveimur viðskiptadögum. Innherji 25.10.2023 14:30
Afkoman undir væntingum en Marel skilaði „framúrskarandi“ sjóðstreymi Afkoma Marels á þriðja fjórðungi var nokkuð undir væntingum greinenda á alla helstu mælikvarða en á móti benda stjórnendur á „framúrskarandi“ sjóðstreymi, sem var yfir 60 milljónir evra, og lægri kostnaðargrunn eftir hagræðingaraðgerðir. Hlutfall pantana á móti tekjum stóð í stað frá fyrri fjórðungi en horfur eru taldar fara „batnandi“ samhliða bættu ytra umhverfi. Fjármagnskostnaður Marels hefur meira en þrefaldast á fyrstu níu mánuðum ársins frá sama tíma í fyrra. Innherji 23.10.2023 23:14
Útlit fyrir að EBIT-hlutfall Marels verði undir tíu prósent á krefjandi fjórðungi Gangi spár greinenda eftir verður samdráttur á flestum sviðum Marels á milli ára þegar félagið birtir uppgjör sitt fyrir þriðja fjórðung eftir lokun markaða í dag og að framlegðarhlutfallið muni vera um rétt tæplega tíu prósent. Hlutabréfaverð Marels hefur fallið um liðlega fjórðung á innan við tveimur mánuðum og ekki verið lægra frá því snemma árs 2018. Innherji 23.10.2023 09:49
Marel réttir út kútnum vegna væntinga um minni söluþrýsting erlendra sjóða Hlutabréfaverð Marels, sem hefur verið undir stöðugum þrýstingi til lækkunar um nokkurt skeið, hækkaði skarpt við opnun Kauphallarinnar í morgun – heldur dró úr þeim verðhækkunum er leið á daginn – þegar fjárfestar vörpuðu öndinni léttar um að framboð á bréfum til sölu hjá erlendum sjóðum væri búið að klárast í bili. Hlutabréfamarkaðurinn snérist við fljótlega eftir óvænta afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra vegna aukinnar pólitískrar óvissu í augum fjárfesta. Innherji 10.10.2023 17:07
Félag Árna Odds tapaði yfir 1.100 milljónum eftir verðfall á bréfum Marels Eignarhaldsfélag í eigu Árna Odds Þórðarsonar, forstjóra Marels, tapaði yfir 1.122 milljónum króna á síðasta ári eftir mikið verðfall á gengi bréfa Marels sem er eina undirliggjandi eign félagsins. Eigið fé þess var neikvætt um liðlega 600 milljónir um áramótin en endurgreiðsla láns við fjármálastofnun sem hvílir á félaginu, tryggt með veðum í bréfum Eyris Invest, var framlengt til þriggja ára. Innherji 4.10.2023 14:56
Steinunn Linda frá Marel til Varðar Steinunn Linda Jónsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri hjá Verði og mun hefja störf 15. nóvember næstkomandi. Hún kemur til fyrirtækisins frá Marel. Viðskipti innlent 28.9.2023 13:11
IFS lækkar verðmat Marels um tíu prósent en mælir með að halda bréfunum IFS greining lækkaði verðmat sitt á Marel um tíu prósent frá fyrra mati og ráðleggur fjárfestum að halda hlutabréfum fyrirtækisins. Rekstur félagsins á öðrum ársfjórðungi hélt áfram að valda vonbrigðum. Helsti vandi Marels er kostnaðarstjórnun, segir í greiningu. Innherji 8.9.2023 14:03
Rekstrarhagnaður Marels verður sá lægsti í átta ár Rekstur Marels verður ekki „sérlega glæsilegur“ í ár. Það stefnir í að rekstrarhagnaður fyrirtækisins verði sá lægsti síðan árið 2015. Verðmat Jakobsson Capital á Marel lækkaði aftur í kjölfar uppgjörs annars fjórðungs, nú um átta prósentum í evrum talið. Innherji 22.8.2023 11:42
JP Morgan lækkar verðmat sitt á Marel vegna útlits fyrir lakari afkomu Eftir að stjórnendur Marels þurftu að falla frá yfirlýstu markmiði sínu um að ná 14 til 16 prósenta framlegðarhlutfalli í lok þessa árs hafa greinendur bandaríska stórbankans JP Morgan lækkað nokkuð verðmat sitt á íslenska félaginu enda þótt þeir telji það engu að síður verulega undirverðlagt á markaði. Bankinn spáir því að framlegðarhlutfallið á árinu 2023 verði undir tíu prósentum. Innherji 1.8.2023 16:33
Eftir tímabil hægagangs hjá Marel hefur komið kröftugur vöxtur Fjóra ársfjórðunga í röð hafa pantanir verið með minna móti (e. soft) hjá Marel. Það gerðist síðast árið 2009 að pantanir voru ekki ýkja miklar fjóra fjórðunga í röð. Í kjölfarið jukust pantanir um 21 prósent á tólf mánuðum. Pantanir voru dræmar þrjá fjórðunga í röð á árunum 2013-2014. Að þeim tíma liðnum jukust pantanir líka mikið á næstu tólf mánuðum, upplýsti forstjóri Marels á afkomufundi með fjárfestum. Innherji 27.7.2023 15:07