Meistaradeildin
1 2 3 4 5 6 7 … 273 ›
Fylgist með þessum í Meistaradeildinni: Stór nöfn á nýjum stöðum Á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, má finna lista af leikmönnum sem vert er að fylgjast með í Meistaradeild Evrópu karla í vetur. Deildarkeppni Meistaradeildarinnar hefst í dag og er fjöldi leikja í beinni útsendingu á rásum Stöðvar 2 Sport. Fótbolti 17.9.2024 07:02
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu fyrirkomulagi“ Meistaradeild Evrópu í fótbolta hefst í næstu viku en keppnin fer að þessu sinni fram með nýju og gjörólíku fyrirkomulagi. Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingar hans hituðu upp fyrir Meistaradeildartímabilið í sérstökum upphitunarþætti sem má nú sjá inn á Vísi. Fótbolti 12.9.2024 10:03
Kærir UEFA fyrir að nota nýja keppnisfyrirkomulagið án leyfis Síleskur íþróttafræðingur hefur kært evrópska knattspyrnusambandið UEFA fyrir að nota keppnisfyrirkomulag sem hann kveðst hafa fundið upp. Fótbolti 29.8.2024 22:17
„Við erum fokking leiðir yfir því“ Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir að hafa misst af tækifæri til að spila í sjálfri Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vetur, með grátlegum hætti. Fótbolti 29.8.2024 16:02
Hákon mætir meisturunum og fer á Anfield Dregið var í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í dag og þar með réðst hvaða átta mótherja hvert lið fær í keppninni. Drátturinn var í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Sport 2. Fótbolti 29.8.2024 15:30
Dregið í nýja Meistaradeild í beinni: Hvaða stórleiki býður tölvan upp á? Nýja útgáfan af Meistaradeild Evrópu í fótbolta er að hefjast og í dag ræðst það hvaða lið mætast í 36 liða deildakeppninni sem búin hefur verið til. Búast má við stórleikjum í hverri leikviku og spennu fram á síðustu stundu. Fótbolti 29.8.2024 10:01
Hákon í Meistaradeildina en Elías rétt missti af henni Hákon Arnar Haraldsson spilar í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vetur eftir að lið hans Lille sló út Slavia Prag í Tékklandi í kvöld. Fótbolti 28.8.2024 21:16
Galatasaray beið afhroð geng Young Boys Rándýrt lið Galatasaray mun ekki spila í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir tap gegn Young Boys frá Sviss í kvöld. Heimamenn í Galatasaray þurftu að vinna leikinn með tveggja marka mun en enduðu á að tapa 0-1. Fótbolti 27.8.2024 21:36
Norska félagið einum leik frá að lágmarki fjórum milljörðum Það er mikið undir hjá mörgum félögum í Evrópufótboltanum í þessari viku enda kemur þá í ljós hvaða lið komast í Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina. Fótbolti 27.8.2024 12:00
Midtjylland á von á sekt fyrir að syngja „UEFA mafía“ Malmö FF, HJK Helsinki og Brann hafa öll fengið háar sektir fyrir að gefa í skyn að spilling ríki innan evrópska knattspyrnusambandsins, FC Midtjylland mun væntanlega bætast í þann hóp bráðum. Fótbolti 23.8.2024 15:31
Félagar Elíasar með þrjú stangarskot en jöfnuðu undir lokin Danmerkurmeistarar Midtjylland gerðu 1-1 jafntefli við Slovan Bratislava í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 21.8.2024 20:57
Hákon Arnar með stoðsendingu í mikilvægum sigri Lille Hákon Arnar Haraldsson og félagar í franska knattspyrnuliðinu Lille eru komnir með annan fótinn í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á Slavia Prag í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppninni. Fótbolti 20.8.2024 21:11
Mark og titill í fyrsta leik Mbappé með Real Frumraun Kylians Mbappé með Real Madrid gekk eins og í sögu í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Atalanta í Ofurbikar UEFA í fótbolta. Fótbolti 14.8.2024 18:30
„Versta ákvörðun sem ég hef séð á þrjátíu ára ferli í fótbolta“ Philippe Clement, knattspyrnustjóri Rangers, var vægast sagt ósáttur við dómara leiksins gegn Dynamo Kiev í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 14.8.2024 16:31
Hákon Arnar og félagar slógu lærisveina Mourinho úr Meistaradeild Evrópu Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille þegar liðið sótti José Mourinho og lærisveina hans í Fenerbahçe út í forkeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu. Þá var Elías Rafn Ólafsson í marki Midtjylland þegar liðið sló Ferencvárosi frá Ungverjalandi úr leik. Fótbolti 13.8.2024 20:12
Farinn frá Man. City til Atlético fyrir metfé Argentínski sóknarmaðurinn Julián Álvarez var í dag kynntur sem nýr leikmaður spænska knattspyrnufélagsins Atlético Madrid. Fótbolti 12.8.2024 15:00
Hákon byrjaði er Lille bjargaði sigri gegn lærisveinum Mourinho Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille er franska liðið tók á móti Fenerbache frá Tyrklandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 6.8.2024 20:25
Valgeir lagði upp tvö mörk í stórsigri Häcken Íslenski landsliðsmaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson átti góðu gengi að fagna með sínu liði í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 31.7.2024 19:10
Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ „Jæja næstu 50 mínútur fara í að eyða líflátshótunum og ógeðslegum kommentum á Facebook/Instagram/Twitter síðum Víkings,“ segir Hörður Ágústsson sem sér um samfélagsmiðla knattspyrnuliða Víkinga, eftir tap liðsins gegn Shamrock Rovers í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 17.7.2024 11:01
Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær Víkingar duttu úr leik á grátlegan hátt í forkeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi eftir 2-1 tap á móti Shamrock Rovers á Tallaght leikvanginum í Dublin. Fótbolti 17.7.2024 10:22
„Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga var svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Shamrock Rovers í gær sem þýðir að Víkingar eru úr leik í undankeppni Meistaradeildarinnar. Hann sagði að það hafi verið erfitt að koma inn í búningsklefa eftir leik. Fótbolti 17.7.2024 07:01
Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Víkingar eru úr leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 tap gegn Shamrock Rovers í Dublin. Nikolaj Hansen gat jafnað metin úr vítaspyrnu í uppbótartíma en skaut í stöng. Fótbolti 16.7.2024 18:17
Fjör hjá Víkingum í Dublin Víkingur mætir Shamrock Rovers í seinni leik liðanna í undankeppni Meistaradeildarinnar í Dublin í kvöld. Mikið fjör er hjá stuðningsmönnum Víkinga í Dublin. Fótbolti 16.7.2024 18:01
„Ég held að allir geri sér grein fyrir því hvað er í húfi“ Víkingur spilar gríðarmikilvægan seinni leik við Shamrock Rovers í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli. Þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson á von á allt öðruvísi leik í kvöld. Fótbolti 16.7.2024 15:35
„Fyrir framan okkar áhorfendur erum við allt annað lið og þeir munu sjá það“ Stephen Bradley segir sína menn í Shamrock Rovers hafa fengið færi til að stela sigrinum gegn Víkingi í kvöld. Liðin mætast aftur eftir viku og þar munu Írarnir sýna allt aðra hlið. Fótbolti 9.7.2024 21:36
„Ég efast um að þeir komist upp með svona leik á sínum heimavelli“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var vitaskuld svekktur að hafa ekki unnið Shamrock Rovers í fyrsta leik undankeppni Meistaradeildarinnar. Niðurstaðan markalaust jafntefli en heimamenn stýrðu spilinu stærstan hluta leiksins. Fótbolti 9.7.2024 21:24
Uppgjörið: Víkingur - Shamrock Rovers 0-0 | Evrópuævintýri Víkinga hefst á markalausu jafntefli Víkingur gerði 0-0 jafntefli við Shamrock Rovers í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 9.7.2024 18:00
„Stund sannleikans að renna upp“ Næstu vikurnar verða strembnar hjá Víkingum en liðið leikur bæði í Evrópukeppni, Bestudeildinni og framundan er bikarúrslitaleikur í ágúst. Fótbolti 9.7.2024 11:01
Víkingar án tveggja sterkra leikmanna í Meistaradeildinni á morgun Íslands- og bikarmeistarar Víkings hefja leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld þegar Shamrock Rovers mætir í Víkina. Tveir af máttarstólpum Víkinga verða fjarri góðu gamni. Íslenski boltinn 8.7.2024 23:30
Víkingar fara til Prag ef þeir klára Írana Íslandsmeistarar Víkings mæta Sparta Prag í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu takist þeim að leggja írska liðið Shamrock Rovers í fyrstu umferð. Fótbolti 19.6.2024 10:46