Fögnuðu bolludeginum með vistkjöti úr frumum japanskrar akurhænu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 13. febrúar 2024 19:00 George Peppou og Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson. Thelma Arngríms ORF Líftækni og ástralska nýsköpunarfyrirtækið Vow héldu fyrstu opinberu smökkun á vistkjöti í Evrópu í gær. Boðið var upp á tvo rétti þar sem vistkjöt, ræktað úr frumum úr japanskri kornhænu, var í aðalhlutverki. „
Það er gaman að gefa Íslendingum kost á að vera með þeim allra fyrstu til að smakka þessa matarnýjung framtíðarinnar, og upplifa að vistkjöt er ekki bara sjálfbærari valkostur fram yfir hefðbundna kjötframleiðslu heldur er það einnig ljúffengur valkostur. Vaxtarþættir ORF gera vistkjötsframleiðendum eins og Vow ekki aðeins kleift að rækta vistkjöt heldur einnig að skala upp ræktunina til að mæta framtíðareftirspurn,” segir Berglind Rán Ólafsdóttir, forstýra ORF Líftækni. Meðal gesta voru Katrín Jakobsdóttir forsætiráðherra, Bergur Ebbi, Védís Hervör og Svanhildur Hólm, svo fáir einir séu nefndir. Berglind og Katrín Jakobsdóttir. Tvífarar vikunnar?Thelma Arngríms Bergur Ebbi, Védís Hervör og Svanhildur Hólm.Thelma Arngríms Ólafur leggur lokahönd á réttinn sem inniheldur vistkjöt.Thelma Arngríms Sjálfbær valkostur í náinni framtíð Í fréttatilkynningu ORF segir að framleiðsla vistkjöts mun losa umtalsvert minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundinn landbúnaður, auk þess framleiðslan krefst minna landssvæðis og vatns. „Vow er brautryðjandi í þróun aðferða til að rækta kjöt beint upp úr frumum dýra. Með þessari nýstárlegu aðferð er hægt að framleiða hágæða kjötvörur en halda neikvæðum umhverfisáhrifum í lágmarki. Vaxtaþættir fyrir vaxandi markað Þrátt fyrir að markaður fyrir vistkjöt sé enn á frumstigum er áætlað að hann muni vaxa gríðarlega hratt á næstu árum og áratugum; Skýrsla frá McKinsey spáir því að vistkjötsmarkaður verði 25 milljarða bandaríkjadollara markaður um 2030. Til að vistkjöt nái samkeppnishæfni og mæti eftirspurn á markaði, þurfa framleiðendur vistkjöts að stórauka framleiðslugetu og lækka framleiðslukostnað. Vaxtarþættir eru lykilþáttur í framleiðsluferlinu. Um árabil hefur ORF Líftækni þróað skilvirka leið á framleiðslu vaxtarþátta dýra í erfðabreyttu byggi. Síðustu ár, hefur fyrirtækið unnið ötullega við að byggja uppvörulínu fyrir vistkjötsmarkað samhliða því að auka framleiðslugetu sína til að mæta vaxandi eftirspurn,“ segir í tilkynningunni. Starfsfólk ORF ásamt stjórnarformanni ORF, forstjóra Vow og Óli Óla á Brút.Thelma Arngríms Katrín Jakobsdóttir, George Peppou smakka gómsætt Forged parfait.Thelma Arngríms Ræktað úr frumum kornhænu „Vow er einstakt fyrirtæki á vistkjötsmarkaðinum en við einblínum á að fjölga valkostum fremur en að reyna að endurskapa það sem við borðum nú þegar. Við viljum framleiða kjöt sem er ekki eins og annað kjöt – einstakt og bragðgott, næringarríkt og sjálfbært. Það er ekki eins og neitt sem þú hefur áður smakkað. Þess vegna erum við svo spennt að kynna ásamt ORF alveg nýja tegund matvæla á þessu tímamótaviðburði,“ segir George Peppou, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vow. „Vistkjöt Vow, sem ræktað er úr frumum japönskrar kornhænu, hefur þegar verið metið öruggt til neyslu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi og búist er við svipaðri staðfestingu frá Singapúr á næstu dögum og munu fleiri fylgja í framhaldinu.“ George Peppou og Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson.Thelma Arngríms Sendiherra Japan á Íslandi, Suzuki Ryotaro, og Sigtryggur Hilmarsson.Thelma Arngríms Sævar Helgi Bragason, Gunnar Sigurðarson, Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson.Thelma Arngríms Jón Már Björnsson, Einar Mäntylä meðstofnandi.Thelma Arngríms Gestir voru spenntir fyrir þessari fyrstu smökkun á vistkjöti í Evrópu.Thelma Arngríms Berglind Rán Ólafsdóttir, George Peppou, Nótt Thorberg.Thelma Arngríms George Peppou, Berglind Rán Ólafsdóttir og Katrín Jakobsdóttir spjalla saman.Thelma Arngríms Auður Árnadóttir, Oddur Már Gunnarsson, Ingimundur Árnason.Thelma Arngríms Björn Lárus Örvar.Thelma Arngríms Elva Rakel Jónsdóttir.Thelma Arngríms Berglind Rán, George Peppou, Katrín Jakobsdóttir og Björn Lárus Örvar.Thelma Arngríms Ólafur Örn og Katrín Jakobsdóttir spjalla saman.Thelma Arngríms
Matur Loftslagsmál Mest lesið „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Geggjað heimatilbúið „Twix“ Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Fleiri fréttir Geggjað heimatilbúið „Twix“ Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Eignaðist alvöru pungsa með alvöru pungsa Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Sjá meira