Innlent

Paul Watson ánægður með Svandísi

Jakob Bjarnar skrifar
Paul Watson segist hafa verið þess albúinn að láta sverfa til stáls á miðunum, til að koma í veg fyrir fyrirhugaðar hvalveiðar. Nú mun ekki koma til átaka og er Watson afar ánægður með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur að afturkalla leyfi til hvalveiða.
Paul Watson segist hafa verið þess albúinn að láta sverfa til stáls á miðunum, til að koma í veg fyrir fyrirhugaðar hvalveiðar. Nú mun ekki koma til átaka og er Watson afar ánægður með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur að afturkalla leyfi til hvalveiða. vísir/vilhelm/getty

Paul Watson segir að hann ætli að hinkra við með skip sitt í bili á Íslandsmiðum ef ske kynni að Kristján Loftsson leggi af stað á miðin með hvalfangara sína.

„Yfirlýsingin frá yfirvöldum þess efnis að bann væri lagt við hvalveiðum birtist okkur þegar við vorum að koma inn í íslenska lögsögu. Við erum mjög ánægðir með hana,“ segir Paul Watson aktívisti og skipstjóri auk Locky MacLean á skipinu John Paul De Joria.

Eins og fram kom á Vísi í gær ætluðu þeir að trufla fyrirhugaðar hvalveiðar sem til stóð að hæfust á morgun. Nú verður ekkert af því.

„Við erum mjög ánægðir að geta nú komist hjá átökum við Landhelgisgæsluna því við hefðum gert allt sem í okkar valdi stæði til að koma í veg fyrir veiðarnar. Jafnvel þó það kynni að þýða það að við myndum glata skipi okkar. Slík átök myndu hafa mjög neikvæð áhrif fyrir Ísland og Landhelgisgæsluna,“ segir Paul Watson og greinilega í vígahug.

„Við vorum undir það búnir að þurfa að sæta handtöku og verða dæmdir til sektargreiðslna vegna afskipta okkar af ólöglegum veiðum Kristjáns Loftssonar. Réttarhöldin myndu gefa okkar tækifæri til að þrýsta enn á um að íslenska ríkisstjórnin segði komið gott með hvalveiðar.“

En nú er ljóst að ekki mun koma til þess. Ekki í bili.

„Nei. Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Tilkynning hennar þýðir að ekki mun koma til átaka.“


Tengdar fréttir

Engar hvalveiðar í sumar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að stöðva veiðar á langreyðum í sumar. Til stóð að hefja hvalveiðar á morgun en nú er ljóst að það verður ekki gert fyrr en 1. september, í fyrsta lagi. „Nú er spurningin sú hvort þessi atvinnugrein eigi sér yfir höfuð framtíð,“ segir hún.

Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju eins manns

Paul Watson fyrrverandi leiðtogi Sea Shepard samtakanna sem sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn árið 1986 nálgast Íslandsmið til að trufla veiðar Hvals hf. í sumar. Hópur fólks úr Hvalavinum koma saman til mótmæla við hvalbátana seinni partinn í dag en nú er verið að undirbúa þá til veiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×