Pogba loksins klár í slaginn og gæti spilað fyrsta leikinn í tæpt ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. febrúar 2023 13:31 Paul Pogba er loksins tilbúinn að spila. getty/Daniele Badolato Eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla er Paul Pogba loksins klár í slaginn. Hann verður í leikmannahópi Juventus í borgarslagnum gegn Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Pogba hefur ekki enn spilað fyrir Juventus síðan hann kom til félagsins frá Manchester United í sumar. Biðinni gæti loks lokið í kvöld en Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, staðfesti á blaðamannafundi að Frakkinn yrði í hópnum gegn Torino. „Hann er betri og verður í hópnum. Ef þörf krefur munum við setja hann inn á en hann mun ekki geta spilað mikið,“ sagði Allegri. Pogba hefur ekki spilað leik í tæpt ár, eða síðan 19. apríl í fyrra þegar Manchester United tapaði fyrir Liverpool, 4-0. Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af því að forráðamenn Juventus væru orðnir þreyttir á Pogba og íhuguðu jafnvel að rifta samningi hans við félagið eftir tímabilið. Þeim finnst Pogba óábyrgur og eru pirraðir yfir því að hann hafi ekki farið í aðgerð á hné því hann taldi að það ógnaði þátttöku hans á HM í Katar, þar sem hann spilaði svo ekki. Pogba er einn launahæsti leikmaður Juventus en talið er að hann fái rúmlega sjö milljónir punda í árslaun hjá félaginu. Franski miðjumaðurinn lék áður með Juventus á árunum 2012-16 og varð þá fjórum sinnum ítalskur meistari með liðinu og hjálpaði því að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu 2015. Leikur Juvnetus og Torino hefst klukkan 19:45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.
Ítalski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Sjá meira