Innlent

„Þetta reynir allt mjög á þolrifin“

Sylvía Hall skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir vonbrigði að þurfa að standa í þeim sporum að tilkynna hertar aðgerðir. Aðgerðirnar sem voru áður í gildi hafi einfaldlega ekki virkað sem skyldi og því þurfi að bregðast við.

„ Ég veit að þetta reynir allt mjög á þolrifin en við verðum áfram að höfða til skynsemi fólks og undirstrika mikilvægi samstöðunnar. Við stöndum í þessu saman og verðum að styðja hvert annað eftir megni á meðan við glímum við ölduna sem nú skellur á okkur af miklum þunga,“ skrifar Áslaug á Facebook-síðu sína í dag. Hún minnir á að allir geti haft áhrif með því að virða gildandi reglur og takmarkanir.

Að mati Áslaugar er nauðsynlegt að huga að því hversu mikil áhrif samkomutakmarkanir hafa á þjóðfélagið og segir hún ríkisstjórnina ætla að gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að takmarka neikvæð áhrif aðgerðanna á líf fólks.

„Ljóst er að þegar svo ríkir almannahagsmunir krefjast þess að gripið sé til hertari aðgerða þá verður það ekki gert bótalaust. Allt veltur á því að ná tökum á útbreiðslu veirunnar. Það er mikilvægt fyrir störfin, almennt heilsufar, skólahald, starfsemi heilbrigðiskerfisins og efnahagslífið í heild sinni.“

Frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.Vísir/Vilhelm

Óbreyttar reglur hefðu þýtt lengri takmarkanir 

Áslaug segir ríkisstjórnina hafa staðið frammi fyrir þeirri ákvörðun að hafa reglurnar óbreyttar í lengri tíma eða grípa til „afgerandi takmarkana“ í skamman tíma.

Líkt og fyrr sagði voru gildandi reglur ekki að virka og því hafi þau kosið að fara þá leið sem þau töldu árangursríkari. Þannig gæti aðstæður færst „í eðlilegra horf í tæka tíð fyrir jól og áramót“.

„Mig langar líka að þakka almenningi öllum, það er ekki sjálfsagt að vera með okkur í þessu. Þá sérstaklega unga fólkinu sem eru að fórna miklu í þessu ástandi, sérstaklega hvað varðar félagslíf og samskipti við sína félaga. Takk!“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×