Fótbolti

Heimir: Verður erfitt að koma skilaboðum inn á völlinn

Tómas Þór Þórðarson í Eskisehir skrifar
Strákarnir taka smá fund fyrir æfingu í dag á nýja Eskisehir-vellinum.
Strákarnir taka smá fund fyrir æfingu í dag á nýja Eskisehir-vellinum. vísir/tom
Strákarnir okkar æfðu á glæsilegum keppnisvellinum í Eskisehir í dag en þar mæta þeir Tyrkandi í undankeppni HM 2018 annað kvöld.

Stuðningsmenn hér í borg og tyrkneskir stuðningsmenn almennt eru þekktir fyrir mikil læti og er búist við ærandi hávaða og stemningu á leiknum á morgun.

Íslenska liðið býr að þeirri reynslu að hafa spilað hér fyrir tveimur árum síðan í svipaðri stemningu í Konya og vita því nokkurn veginn að hverju þeir ganga.

„Það er mikil reynsla í þessum síðasta leik hér sem við spiluðum. Það var allt undir hjá Tyrkjum og við fengum að kynnast andrúmsloftinu eins og það gerist hvað best eða verst hvernig sem er litið á það. Það hefur verið hluti af okkar undirbúningi að reyna að nýta stemninguna og lætin til að hvetja sig áfram,“ sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, við Vísi í dag.

Hávaðinn verður svo mikill að hreinlega verður erfitt fyrir menn að tjá sig á meðan leik stendur.

„Það verður bara erfitt að koma skilaboðum inn á völl frá bekknum og á milli leikmanna þannig að við þurfum að reyna að vera búnir að fara yfir allt sem getur komið upp og vera búnir að ræða það áður. Þannig verða skilaboðin skýrari þegar að við spilum leikinn því við vitum að það verður erfitt að koma skilaboðum inn á völlinn,“ sagði Heimir Hallgrímsson.


Tengdar fréttir

Skrítið að hafa Kára ekki við hliðina á mér

Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, segir mikil gæði hjá Íslandi og það sýni sig með því að liðið er enn þá að gera góða hluti eftir að liðið komst á EM 2016. Honum fannst skrítið að spila ekki með Kára Árnasyni á móti Úkraínu í síðasta leik.

Svona var fundur Heimis og Arons Einars í Eskisehir

Vísir var með beina beina textalýsingu frá blaðamannafundi íslenska landsliðsins í fótbolta í Eskisehir í Tyrklandi þar sem strákarnir okkar mæta Tyrkjum í undankeppni HM 2018 annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×