Viðskipti erlent

BlackBerry tekur slaginn

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Einn farsíma BlackBerry.
Einn farsíma BlackBerry. vísir/getty
Símaframleiðandinn BlackBerry ætlar að skipta um gír og einbeita sér að því að þróa tækni fyrir sjálfkeyrandi bíla. Frá þessu greindi fréttaveitan Reuters um helgina en BlackBerry opnaði rannsóknastöð sína í Waterloo í Kanada í gær. Viðstaddur opnunarathöfnina var Justin Trudeau forsætisráðherra.

BlackBerry varð vinsælt merki á farsímamarkaði þegar fyrirtækið setti síma sinn, Quark, á markað. Sá sími var útbúinn litlu lyklaborði og hentaði hann einkar vel fyrir atvinnufólk þar sem auðvelt var að nálgast tölvupóst í símanum.

Með tilkomu snjallsíma og snerti­skjáa lækkaði frægðarsól BlackBerry hins vegar á himni og hafa símar fyrirtækisins ekki selst eins vel þar sem einkenni þeirra, lyklaborðið, er í raun orðið óþarft.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×