Viðskipti erlent

Bermúda versta skattaskjólið

Sæunn Gísladóttir skrifar
Bermúda er eitt af fjórum breskum yfirráðasvæðum á listanum.
Bermúda er eitt af fjórum breskum yfirráðasvæðum á listanum. Vísir/Getty
Eyjan Bermúda í Atlantshafi er versta skattaskjólið fyrir fyrirtæki í heiminum samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam.

The Guardian greinir frá því að þrjú bresk yfirráðasvæði utan Bermúda séu á listanum. Meðal fimmtán verstu skattaskjólanna eru Cayman-eyjar, Jersey og Bresku jómfrúaeyjar (þeirra á meðal er Tortóla).

Oxfam greindi frá því árið 2012 að bandarísk fyrirtæki hefðu tilkynnt um 80 milljarða dollara hagnað í Bermúda, sem er meira en samanlagður hagnaður þeirra í Japan, Kína, Þýskalandi og Frakklandi.

Oxfam hefur gagnrýnt starfsemi skattaskjóla fyrir að hafa af ríkisstjórnum fé sem mikil þörf sé á. Yfirvöld í Bermúda hafa hins vegar gagnrýnt skýrslu Oxfam og segja hana uppfulla af villum. Þau segjast jafnframt taka þátt í alþjóðlegu starfi gegn skattaundanskotum.

Stefnt er að því að lækka fyrirtækjaskatt í Bretlandi úr 20 prósentum í 17 prósent fyrir árið 2020 til að ýta undir það að bresk fyrirtæki greiði skatt í heimalandi sínu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×