Viðskipti erlent

Útflutningur frá Kína dregst saman á ný

Sæunn Gísladóttir skrifar
Xi Jinping, forseti Kína, hefur ástæðu til að vera áhyggjufullur yfir efnahagsástandinu í landinu, en útflutningur frá Kína dregst enn saman.
Xi Jinping, forseti Kína, hefur ástæðu til að vera áhyggjufullur yfir efnahagsástandinu í landinu, en útflutningur frá Kína dregst enn saman. Nordicphotos/AFP
Útflutningur frá Kína dróst saman um 4,4 prósent í júlímánuði, samanborið við árið áður. Útflutningur hefur dregist saman á tólf af síðustu þrettán mánuðum.

Samdrátturinn var minni en í júní þegar hann mældist 4,8 prósent, en var samt sem áður meiri en greiningaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Innflutningur til Kína var einnig minni en búist var við og dróst saman um 12,5 prósent milli ára.

Þessar tölur valda greiningar­aðilum áhyggjum í ljósi þess að Kína er einn stærsti viðskiptamarkaður heims. Talið er að óvissa sem ríki um allan heim, vegna lágs hrávöruverðs, skuldakreppunnar í Evrópu og útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, hafi lamandi áhrif á alþjóðahagkerfi.

Sérfræðingar búast við daufum viðskiptum næstkomandi mánuði, nýjustu tölur gefa í skyn að aðgerðir í Peking til að ýta undir vöxt í hagkerfinu hafi ekki skilað sér.

Verg landsframleiðsla í Kína jókst um einungis 6,7 prósent á öðrum ársfjórðungi 2016, sem er minna en áður hefur tíðkast í landinu. 

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×