Viðskipti erlent

Selfie ýta undir sölu á förðunarvörum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Kim Kardashian hatar ekki sjálfurnar.
Kim Kardashian hatar ekki sjálfurnar.
Vaxandi vinsældir þess að taka "selfie" eða sjálfsmynd hafa ýtt undir sölu á förðunarvörum hjá fyrirtækinu Estee Lauder. Talskona fyrirtækisins segir þetta í samtali við BBC.

BBC greinir frá því að sala á förðunarvörum hafi vaxið mest af öllum vörum fyrirtækisins á síðasta viðskiptaári fram til lok júní. Salan jókst um níu prósent milli ára.

Estee Lauder á snyrtivörufyrirtækin MAC, Clinique og Bobbi Brown. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast marka breytingu á því sem viðskiptavinir þeirra hafa áhuga á. Vegna vaxandi sjálfsmyndagleði vilja viðskiptavinir fyrirtækisins vera tilbúnir til að taka selfie eða "sjálfu" hvenær sem er. Vegna þessa hefur heildarsala hjá Estee Lauder aukist um fjögur prósent milli ára. 

Mikill áhugi er á varalitum og meiki. Sala jókst um yfir tíu prósent á vörum MAC, Bobbi Brown og Smashbox á síðasta ári. Myndbandabloggarar hafa mikil áhrif á það hvað er vinsælt hjá fyrirtækinu. Sala á litatöflum hefur til dæmis aukist vegna vaxandi vinsælda þeirra meðal myndbandabloggara. 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×