Viðskipti erlent

Shell býst við verri afkomu

Sæunn Gísladóttir skrifar
Royal Dutch Shell lækkaði afkomuspá sína fyrir fjórða ársfjórðung 2015 um 39 milljarða íslenskra króna.
Royal Dutch Shell lækkaði afkomuspá sína fyrir fjórða ársfjórðung 2015 um 39 milljarða íslenskra króna. Fréttablaðið/Getty
Í gær lækkaði Royal Dutch Shell afkomuspá sína um 300 milljónir dollara, jafnvirði 39 milljarða íslenskra króna. Olíufélagið á von á 1,6 milljarða dollara hagnaði, jafnvirði rúmlega 200 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi 2015.

Ef spáin gengur eftir mun fyrirtækið hagnast um rúmlega helmingi minna en á fjórða ársfjórðungi 2014.

Shell áætlar að tekjur ársins muni nema 10,4 til 10,7 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 1.350-1.390 milljarða íslenskra króna, sem er undir áætlun.

Í kjölfar tilkynningarinnar féllu hlutabréf í Shell um 3,7 prósent í morgunviðskiptum í gær. Í kjölfarið lækkaði hlutabréfavísitalan FTSE 100 í Bretlandi um 3,13 prósent í og mældist þá 5.692 stig í gærmorgun. Hún hefur ekki mælst lægri í þrjú ár.

Tilkynnt var í apríl í fyrra að til stæði að Shell tæki yfir gasfyrirtækið BG Group. Í næstu viku hittast hluthafar til að kjósa um yfirtökuna. Þegar tilkynnt var um yfirtökuna var hrávöruverð á olíu 55 dollarar á tunnu en er nú í kringum 28 dollara. Því er óvíst hvað verður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×