Arnór Ingvi: Stór gluggi í janúar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. janúar 2016 08:15
Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason, sem varð Svíþjóðarmeistari með Norrköping í haust, verður í byrjunarliði Íslands sem mætir Finnlandi í æfingaleik í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag.Sjá einnig: Eiður Smári fyriliði gegn Finnlandi Arnór Ingvi sagði að það hefði haft mikla þýðingu fyrir sig að vera bæði valinn í landsliðið og fá að spila með Íslandi í vináttulandsleikjunum gegn Póllandi og Slóvakíu í nóvember. „Sérstaklega að fá að koma inn þegar það gengur svona vel. Það var gaman að fá að byrja báða leiki þó svo að sá seinni hafi verið stuttur,“ sagði Arnór Ingvi í viðtali sem birtist á Youtube-síðu KSÍ en hann fór meiddur af velli í Slóvakíu strax á nítjándu mínútu. Hann á leiki að baki með öllum yngri landsliðum Íslands en segist hafa ekki komið almennilega við sögu fyrr en með U-21 liðinu. „Eftir það var ég fyrst og fremst að einbeita mér að því að standa mig vel með mínu félagsliði. Maður vill alltaf og vonar [að komast í A-landsliðið] en það er heldur ekki gott að gera sér of miklar væntingar ef kallið kemur ekki,“ segir Arnór Ingvi. Hann segir að leikirnir nú í janúar, sem verða þrír talsins hjá íslenska landsliðinu, séu stór gluggi fyrir leikmenn sem ætla að sanna sig fyrir landsliðsþjálfurunum og freista þess að komast á EM í sumar. Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Sjá meira