Viðskipti erlent

25 ára og metinn á 270 milljarða

Bjarki Ármannsson skrifar
Evan Spiegel, stofnandi snjallsímaforritsins Snapchat.
Evan Spiegel, stofnandi snjallsímaforritsins Snapchat. Vísir/AP
Evan Spiegel, stofnandi snjallsímaforritsins Snapchat, er yngsti maðurinn á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólkið í Bandaríkjunum. Spiegel er aðeins 25 ára en er metinn á 2.1 milljarð bandaríkjadala, eða um 268 milljarða íslenskra króna.

Spiegel stofnaði Snapchat árið 2011 ásamt félaga sínum Bobby Murphy og er í dag framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Þeir Murphy kynntust við nám í Stanford-háskóla í Bandaríkjunum þar sem Spiegel lagði stund á nám í vöruhönnun.

Uppgangur Snapchat hefur verið nokkuð ótrúlegur. Tveimur árum eftir að þeir Spiegel og Murpy kynntu forritið til sögunnar undir nýju nafni (áður hét það Picaboo) höfnuðu þeir tilboði Facebook, sem vildi kaupa það á rúma 380 milljarða íslenskra króna.

Enda er forritið, sem gerir notendum kleift að deila myndefni með vinum sínum í takmarkaðan tíma, orðið gífurlega vinsælt. Nærri hundrað milljónir manna nota það dag hvern og um sextíu prósent bandarískra snjallsímanotenda á aldrinum þrettán til 34 ára eru með það í símanum.

Forbes metur fyrirtækið á um tvær billjónir íslenskra króna og telur að Spiegel eigi sjálfur um þrettán prósenta hlut í fyrirtækinu. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×