Fótbolti

Sjáðu öll mörkin úr Meistaradeildinni í gær | Myndband

Seinni leikirnir í fyrstu leikviku Meistaradeildar Evrópu í fótbolta fóru fram í gær og fengu áhorfendur nóg af mörkum. Alls komu 28 mörk í leikjunum átta.

Chelsea sýndi loksins sitt rétta andlit í 4-0 sigri á ísraelsku meisturunum í Maccabi Tel-Aviv en nágrannar þeirra í Arsenal léku manni færri lengst af í 1-2 tapi gegn Dinamo Zagreb.

Þá kom flottasta mark ársins í 1-1 jafntefli Roma og Barcelona í höfuðborg Ítalíu en jöfnunarmark Roma var í glæsilegri kantinum. Setti Alessandro Florenzi þá boltann í netið af 50 metra færi yfir Marc-Andre ter Stegen í marki Barcelona.

Hjörvar Hafliðason og Jón Kaldal voru gestir Meistaramarkanna í gærkvöldi og fóru þeir yfir alla leikina og mörkin, en þáttinn má sjá í heild sinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×