Viðskipti erlent

Um 14 milljarða evra skattsvik í Frakklandi

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Frakklandsforseti hefur verið gagnrýndur fyrir skattastefnu sína.
Frakklandsforseti hefur verið gagnrýndur fyrir skattastefnu sína. Vísir/AP
Franska ríkið verður af 14 milljörðum evra í skatttekjur í ár vegna skattsvika.

Frakklandsforseti, Francois Hollande, hefur hækkað tekjuskatta, virðisaukaskatt og fyrirtækjaskatt síðan hann var kosinn til embættis fyrir tveimur árum.

Ríkisstjórnin bjóst við aukalegum 30 milljörðum evra vegna skattahækkananna, en aðeins 16 milljarðar, rétt rúmur helmingur fyrri áætlana, skilaði sér í ríkiskassann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×