Viðskipti erlent

Kínverjar ætla að byggja lengstu jarðgöng í heiminum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gert er ráð fyrir því að göngin verði undir Bohai-flóanum og gæti framkvæmd þeirra verið lokið árið 2026.
Gert er ráð fyrir því að göngin verði undir Bohai-flóanum og gæti framkvæmd þeirra verið lokið árið 2026. visir/getty
Kínverjar undirbúa nú gerð á lengstu jarðargöngunum í heiminum. Gert er ráð fyrir því að göngin verði undir Bohai-flóanum og gæti framkvæmd þeirra verið lokið árið 2026.

Kostnaður við gerð gangnanna verður á bilinu 26 milljarða Bandaríkjadala en frá þessu er greint á vefmiðlinum The Diplomat.

Göngin verða 123 kílómetrar að lengd og munu tengja saman borgirnar Dalian og Yantai. Ferðatíminn á milli borganna fer því frá átta klukkustundum niður í 40 mínútur.

„Þegar verkefnið hefur verið samþykkt á þinginu getum við hafist handa árið 2015 eða 2016,“ sagði Wang Mengshu, sérfræðingur í gerð jarðgangna ytra en verkefnið hefur verið á borðinu síðan 2012.

„Jarðgöng geta reynst hættuleg á jarðskjálftasvæðum og því þarf að huga vel að þeim þáttum,“ sagði Matthías Loftson, sérfræðingur hjá íslensku verkfræðiskrifstofunni Mannvit, í samtali við miðilinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×