Nálgun AGS samræmist ekki hugmyndum Íslendinga um kerfið. Lovísa Eiríksdóttir skrifar 9. ágúst 2013 08:00 Kristján Þór Júlíusson „
Ég tel það útilokað mál að hægt sé að lækka útgjöld til heilbrigðismála á Íslandi úr 100 milljörðum í 50 milljarða án þess að skerða þjónustuna,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra um fullyrðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í nýútkominni skýrslu hans um stöðu efnahagsmála á Íslandi. Samkvæmt skýrslunni er kostnaður íslenska ríkisins við að reka bæði heilbrigðis- og menntakerfið meiri en í flestum öðrum löndum OECD. Í skýrslunni kemur fram að ríkið gæti lækkað kostnað vegna heilbrigðiskerfisins um 42 prósent án þess að draga úr afköstum þjónustunnar, sé miðað við þau ríki sem reka skilvirkasta heilbrigðiskerfið. Yrði þá kostnaður heilbrigðiskerfisins 3,2 prósent af landsframleiðslu í stað 5,7 prósenta árið 2011. Kristján telur að nálgun AGS gangi hreinlega ekki upp og sé ansi fjarri hugmyndum Íslendinga um að allt of langt hafi verið gengið í niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. „Í skýrslunni er Ísland borið saman við lönd eins og Japan, sem mér þykir ekki samanburðarhæft. Ef við horfum á Norðurlöndin þá er heilbrigðiskostnaður á íbúa næstlægstur á Íslandi,“ útskýrir Kristján. Hann segist þó fagna allri umræðu um heilbrigðiskerfið á Íslandi og að tillögur sjóðsins um úrbætur séu allar af hinu góða. „Þessar tillögur eru í takt við stefnu ríkisins og flestar tillögurnar sem koma þarna fram eru í vinnslu hjá ráðuneytinu,“ bætir Kristján við. Í skýrslunni beinir sjóðurinn einnig athygli sinni að íslenska menntakerfinu og telur að hægt sé að draga úr heildarkostnaði kerfisins um 57 prósent í grunn- og framhaldsskólum án þess að skerða þjónustu við nemendur.Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segist ekki vilja tjá sig um einstaka prósentutölu en tekur undir tillögur sjóðsins um styttingu náms. „Í því er fólginn mikill þjóðhagslegur sparnaður og slíkar aðgerðir eru til þess fallnar að auka ævitekjur“ . Hann bætir við að ráðuneytinu beri skylda til að nýta alla möguleika sem ríkið hefur til þess að ná fram hagkvæmni í kerfinu. Á vef Kennarasambandsins kemur fram að fullyrðingar sjóðsins séu fráleitar. „[…] ekki er tekið tillit til þess að landið er fámennt og strjálbýlt og kostnaður í menntakerfinu hlýtur að vera hlutfallslega meiri en í flestum þeim löndum sem sjóðurinn ber okkur saman við.“ KÍ tekur ekki undir orð Illuga og segir að sambandið hafi lengi lagt áherslu á að nemendur hafi möguleika á að ljúka námi á mislöngum tíma og á mismunandi aldri.
Mest lesið „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira