Viðskipti erlent

Nokia-ráðstefna í Abu Dhabi - Kynna meðal annars nýjan "spjaldsíma“

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Nokia kynnir nýja, óvenju stóra síma.
Nokia kynnir nýja, óvenju stóra síma.
Nokia hefur kynnt fyrstu spjaldsímana (e. phablets), sem eru óvenjustórir símar og í leiðinni kynnti Nokia fyrstu spjaldtölvu sína. Þetta kemur fram á BBC.

Bæði nýi síminn og spjaldtölvan eru af tegundinni Lumia, annars vegar Lumia 1520 og hins vegar Lumia 2520.

Nokia stendur fyrir ráðstefnu í Abu Dhabi þessa dagana undir yfirskriftinni Nokia World. Þetta mun vera stærsti viðburður Nokia áður en sölunni á Nokia yfir til tölvurisans Microsoft lýkur endanlega.

Microsoft samþykkti að kaupa farsímahluta Nokia fyrir 5,4  milljarða evra, eða um 860 milljarða íslenskra króna og endanlega verður gengið frá kaupunum snemma á næsta ári.

„Síðustu tvö ár hafa Microsoft og Nokia verið að berjast á markaðinum, með því að vinna saman eiga þeir meiri möguleika á að verða betri en þegar þeir eru í sitthvoru lagi,“ segir Martin Garnaer frá CCS Insight.

Hann segir að Microsoft geti líka eytt mun meiri pening í markaðssetningu en Nokia gat gert eitt og sér.

Eins og fram kom á Vísi í dag, kynnti Nokia að á nýju tækjunum yrði hægt að komast inn á fleiri öpp en hingað til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×