Viðskipti erlent

Bein útsending frá iPad-kynningu Apple

Samúel Karl Ólason skrifar
Nýjar spjaldtölvur frá Apple verða kynntar klukkan sex að íslenskum tíma. Kynna á fimmtu kynslóð iPad spjaldtölva og aðra kynslóð iPad mini og er kynningin í San Francisco í Bandaríkjunum. Tim Cook forstjóri Apple mun vera í aðalhlutverki á kynningunni.

Mikili eftirvænting er eftir breytingum Apple á spjaldtölvunum og hvaða nýjungar fyrirtækið mun bjóða upp á. Auk þess að kynna spjaldtölvurnar verða einnig gefnar út tilkynningar. Mikili umræða hefur skapast um að kynntur verði útgáfudagur nýrrar MacBook Pro tölvu.

Hægt er að horfa á kynningarfundinn í beinni útsendingu hér á heimasíðu Apple.

Einnig er hægt að fylgjast með umfjöllun Guardian.



Hér er sýnt frá því þegar Tim Cook kynnti nýja iPhone 5s og iPhone 5c

 
 
 
Mute Volume
 
Full Volume
Fast Reverse
Play
Fast Forward
00:55
 
-02:21
Closed Captions
Video Size
Download Video
Share Video
Full Screen
 
 

Tengdar fréttir

iPad 5 og iPad mini 2 kynntir á morgun

Fimmta kynslóðin af iPad spjaldtölvum verður kynnt á morgun sem og önnur kynslóð iPad mini tölvanna. Kynningarathöfnin mun fara fram í San Francisco í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×