Viðskipti erlent

„Bláskjár dauðans“ í iPhone 5S

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Bláskjár dauðans hefur látið á sér kræla í iPhone 5S.
Bláskjár dauðans hefur látið á sér kræla í iPhone 5S.
Eigendur iPhone 5S hafa að undanförnu birt skjáskot og jafnvel myndbönd af því þegar síminn endurræsir sig upp úr þurru. Rétt áður en síminn endurræsir sig þá kemur alveg blár skjár - eitthvað sem margir hafa líkt við bláskjá dauðans (e. Blue Screen of Death) sem tölvunotendur kannast við úr einkatölvum.

Flest tilvika þar sem bláskjár dauðans koma upp í iPhone 5S er í tengslum við iWork appið sem fylgir öllum nýjum tækjum frá Apple sem hafa iOS stýrikerfi.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá þegar notandi iPhone 5S verður fyrir því að bláskjár dauðans birtist og síminn endurræsir sig. Nýverið gaf Apple út nýja útgáfu af iOS 7 stýrikerfinu til að leysa vandamál sem komu upp í nýja stýrikerfinu. Svo virðist sem að nýjasta uppfærslan komi ekki í veg fyrir bláskjá dauðans. Forsvarsmenn Apple segir að unnið sé að lausn málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×