Viðskipti erlent

Fljótandi Avatar-heimur í Disneylandi

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Ferðin í gegnum heiminn byggist meira á sjónsköpun en tilbúnum áþreifanlegum fígúrum.
Ferðin í gegnum heiminn byggist meira á sjónsköpun en tilbúnum áþreifanlegum fígúrum.
Til stendur að byggja Avatar-heim í Disneylandi í Bandaríkjunum. Heimurinn verður með fljótandi og breytilegum  fjöllum og gerviplöntum sem sýnast gefa frá sér náttúrulega birtu. Þetta kemur fram hjá The Verge.

Framkvæmdarstjóri Walt Disney, Robert Iger tilkynnti um fyrst um byggingu Avatar svæðisin árið 2011. Svæið verður í Disney World, Animal Kingdom park. Framkvæmdir hefjast árið 2014 og stefnt er að því að Avatar-heimurinn verði tilbúinn árið 2016.

Eftirmyndirnar eru ekki fastar við neitt, heldur fljóta þær um og meðal annars má sjá litríkar árur (e.Banshees) sem líta út eins og gestir í heiminum. Ferðin í gegnum heiminn byggist meira á sjónsköpun en tilbúnum áþreifanlegum fígúrum.

Tom Staggs, yfirmaður hjá Disney sagði í síðustu viku að hann vildi að gestir fengju að upplifa það hvernig það er að svífa um í heimi með árum sem virðast af öðrum heimi. Þetta verði ný upplifun fyrir gesti og frábrugðin því sem hingað til hefur verið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×