Viðskipti erlent

118 milljarða tap hjá BlackBerry

Jón Júlíus Karlsson skrifar
BlackBerry var eitt sinn eitt vinsælasta snjallsímafyrirtæki í heimi.
BlackBerry var eitt sinn eitt vinsælasta snjallsímafyrirtæki í heimi.
Það eru ekki bjartir tímar framundan hjá BlackBerry snjallsímafyrirtækinu. Leggja á niður 4500 störf og munu 40% af starfsmönnum fyrirtækisins missa vinnuna. BlackBerry greindi frá því í gær að tap fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi þessa starfsárs hefði numið 620 milljónum punda eða því sem nemur 118 milljörðum íslenskra króna.

„Við neyðumst til að ráðast í erfiðar en nauðsynlegar breytingar til að þrífast í þeirri miklu samkeppni sem er í þessari grein,“ segir Thorsten Heins, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Þetta kanadíska fyrirtæki var leiðandi í þróun snjallsíma fyrir örfáum árum og var stofnað árið 1999. Á hátindi fyrirtækisins voru 20 þúsund starfsmenn á mála hjá fyrirtækinu. BlackBerry hefur orðið undir í samkeppni við Apple og Samsung á snjallsímamarkaðnum.

Búist var við slæmri rekstarniðurstöðu á þriðja ársfjórðungi en tap fyrirtækisins var talsvert meira en búist var við. Endurskipuleggja þarf rekstur fyrirtækisins nánast frá grunni og því verður ráðist í umfangsmiklar uppsagnir á næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×