Viðskipti erlent

iPhone 5c og 5s kynntir til leiks

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
iPhone 5c er sagður sími hinna litríku.
iPhone 5c er sagður sími hinna litríku.
Apple kynnti nýjustu viðbætur við iPhone-fjölskylduna í kvöld, iPhone 5c og iPhone 5s. Kynningunnar var beðið með mikilli eftirvæntingu og eru helstu kostir símanna tíundaðir í myndböndum sem nálgast má á vefsíðu Apple.

iPhone 5c er bæði litríkur og glansandi, með 8MP myndavél og stærri rafhlöðu en iPhone 5. Hann er fáanlegur í hvítu, grænu, bleiku, bláu og gulu.

iPhone 5s er hins vegar fáanlegur gylltur, silfraður og dökkgrár. Hann keyrir nýjan 64 bita A7 örgjörva og er sagður bæði hraðari og öflugri en iPhone 5.

Nánari upplýsingar um símana eru fáanlegar á vefsíðunni Símon.is.

Þá er umfjöllun um nýju símana á vef Gizmodo.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×