Viðskipti erlent

Listi Schindlers til sölu á eBay

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Liam Neeson í hlutverki sínu sem Oskar Schindler árið 1993.
Liam Neeson í hlutverki sínu sem Oskar Schindler árið 1993. samsett mynd
Hinn sögufrægi listi Schindlers hefur verið settur á sölu á uppboðsvefnum eBay.

Listinn, sem var meðal annars umfjöllunarefni kvikmyndarinnar Schindler's List eftir leikstjórann Steven Spielberg fyrir um tuttugu árum, er fjórtán blaðsíður að lengd og eru á honum nöfn rúmlega 800 gyðinga sem Oskar Schindler, verksmiðjueigandi og meðlimur þýska Nasistaflokksins, bjargaði frá því að verða sendir í útrýmingarbúðir.

Listinn, sem var áður í eigu fjölskyldu Itzhak Stern, bóhaldara og hægri handar Schindlers, var vélritaður árið 1945 en alls voru listarnir fjórir. Lægsta boð í listann er þrjár milljónir dollara, en það samsvarar um 360 milljónum króna. Hæstbjóðandi mun þó þurfa að sækja listann til Ísrael þar sem hann verður ekki sendur með pósti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×