Viðskipti erlent

Niðursveiflan á alþjóðamörkuðum nær til Wall Street

Niðursveiflan á alþjóðamörkuðum náði einnig til Wall Street þegar þar var opnað fyrir viðskiptin klukkan tvö að okkar tíma.

Dow Jones vísitalan féll um 0,6% í fyrstu viðskiptum dagsins, Nasdag vísitalan féll um 0,9% og S&P 500 féll um 1%.

Fram að þessu hefur nokkur uppgangur verið á mörkuðum á Wall Strett og hafa hlutabréf vestan hafs hækkað að jafnaði um 15% frá áramótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×