Viðskipti erlent

Reikna með 1.500 milljarða hagnaði hjá Toyota

Reiknað er með að bílaframleiðandinn Toyota skili hagnaði upp á 1,3 trilljónir jena eða um 1.500 milljarða króna á síðasta rekstrarári sínu sem lauk í mars s.l. Þetta er nærri fjórfaldur hagnaður miðað við fyrra ár.

Í frétt um málið á Reuters segir að hagnaður Toyota hafi ekki farið yfir eina trilljón jena síðan fjármálakreppan hófst árið 2008. Það er einkum mikil sala í Bandaríkjunum sem stendur að baki þessum aukna hagnaði hjá Toyota.

Uppgjörið verður birt opinberlega á morgun en í dag er frídagur í Japan og markaðir því ekki opnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×