Viðskipti erlent

Suður Kóreumenn yfirgefa iðnaðarsvæðið í norðri

Stjórnvöld í Suður Kóreu hafa kallað heim alla þegna sína sem unnið hafa á iðnaðarsvæðinu Kaesong sem liggur í Norður Kóreu um 10 kílómetra frá landamærunum. Um 175 manns er að ræða.

Norður Kóreumenn lokuðu þessu iðnaðarsvæði þann 3. apríl, eftir að deilur ríkjanna blossuðu upp að nýju, og hafa ekki verið til tals með að opna það aftur. Um 50.000 Norður Kóreumenn unnu að jafnaði á þessu svæði, áður en því var lokað, við framleiðslu á ýmsum iðnaðarvörum.

Í frétt um málið á vefsíðu börsen segir að Suður Kóreumennirnir hafi verið kallaðir heim þar sem skortur var orðinn á mat og ýmsum lífsnauðsynjum hjá þeim.

Iðnaðarsvæði þessu var komið á fót árið 2004 en það stendur undir stórum hluta af gjaldeyristekjum Norður Kóreu. Því var einnig lokað árið 2009 þegar ríkin tvö áttu í svipaðri deilu og nú en sú lokun stóð aðeins í einn dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×